Skipulags- og byggingarfulltrúi Fljótsdalshéraðs auglýsir hér með opið hús þar sem íbúar geta kynnt sér lýsingu vegna deiliskipulags námu á Kollsstaðamóum, Fljótsdalshéraði skv. ákv. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Náma á Kollsstaðamóum er tilgreind í Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 2028 sem E 102. Lýsingin verður til sýnis á bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs, að Lyngási 12, Egilsstöðum föstudaginn 17. maí 2013 frá kl. 8:00 til kl. 16:00. Lýsingin verður einnig á heimasíðu sveitarfélagsins http://egilsstadir.is/index.php?option=com_content&view=article&id=1266&Itemid=655
Íbúum er með þessu gefinn kostur á að koma á framfæri ábendingum við lýsinguna. Ábendingar, ef einhverjar eru, óskast sendar skipulags- og byggingarfulltrúa, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir, eigi síðar en mánudaginn 27.maí 2013, merkt deiliskipulag Kollsstaðamóum.
Tillaga að deiliskipulagi mámu á Kollsstaðamóum, verður svo til sýnis á bæjarskrifstofu Fljótsdalshéraðs, að Lyngási 12, Egilsstöðum 30. maí 2013 frá kl. 8:00 til kl. 16:00 og á heimasíðu sveitarfélagsins.
Ábendingar vegna tillögunnar, ef einhverjar eru óskast sendar Skipulags- og byggingarfulltrúa, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir, eigi síðar en mánudaginn 10. júní 2013, merkt deiliskipulag Kollsstaðamóum.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Fljótsdalshéraðs.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.