Breyting á viðtalstímum bæjarfulltrúa

Á bæjarstjórnarfundi í gær var samþykkt að breyta fyrirhuguðum viðtalstímum bæjarfulltrúa þannig að þann 13. mars verða til viðtals Gunnar Jónsson og Sigrún Blöndal, 10. apríl verði það Páll Sigvaldason og Karl Lauritzson og 8. maí Stefán Bogi Sveinsson og Árni Kristinsson.

Viðtalstímar bæjarfulltrúa eru haldnir í fundarsal bæjarstjórnar frá klukkan 16.30 til 18.30.