Breyting á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs


Óveruleg breyting á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs. Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 04.06.2014 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 varðandi þjónustuhús í Vatnsskarði dagsett 15. maí 2014. Breytingin felur í sér að gert verður ráð fyrir minni háttar mannvirkjum til þess að bæta þjónustu við ferðafólk, sem fer um Dyrfjöll, Stórurð og nálæg svæði. Um er að ræða einn stað í Vatnsskarði við Borgarfjarðarveg nr.94. Umræddur staður er á óbyggðu svæði skv. stefnu um landnotkun í gildandi aðalskipulagi. Aðalskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar, skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um óverulegar breytingar á aðalskipulagi.

Fljótsdalshéraði 05.06.2014

Skipulags- og byggingarfulltrúi
Fljótsdalshéraðs.