Breyting á áætlun strætó

Smávægileg breyting hefur verið gerð á áætlun strætó milli Egilsstaða og Fellabæjar sem tekur gildi frá og með í dag, 18. júní. Breytingin felst í því að hlé sem var á ferðum strætó milli 13.35 og 14.05 og 15.35 og 16.05 fellur niður en nú verður hlé milli 16.05 og 16.35. Þá fellur niður ferðin sem hófst kl. 19.35.