BRAS menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi

Næstkomandi laugardag 8. september, kl. 13.00, verður fyrsta menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi, Bras, sett í Valaskjálf og einnig í Skaftfelli á Seyðisfirði og Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði á sama tíma. Tónlistarmaðurinn Daði Freyr mun flytja tónlist fyrir börn, ræða við þau og semja tónlist með þeim í beinni á stórum skjá. Dans, tónlist og fleira skemmtilegt verður í boði.

Komum og njótum saman með börnunum okkar.

Eftir dagskrána í Valaskjálf gefst nemendur að sjá sýninguna Austfirskt fullveldi – Sjálfbært fullveldi? Í Minjasafninu. Þar sem og í Sláturhúsinu menningarsetri verður einnig hægt að sjá sýninguna Nr. 2 Umhverfing, sem er sýning með verkum 38 listamanna sem flestir eiga einhver tengsl við Héraðið. Laugardagurinn 8 . september er síðasti dagur þeirrar sýningar.

Septembermánuðurinn er helgaður barnamenningu hjá Fljótsdalshéraði og fara fjölmargar smiðjur og verkefni fram í stofnunum sveitarfélagsins næstu vikurnar þar sem börn vinna að listtengdum viðfangsefnum undir handleiðslu fagfólks.

Smiðjur og verkefni á vegum grunn-, leik- og tónlistarskólanna

Listalest Listaháskóla Íslands – listasmiðjur

Nemendur listkennsludeildar LHÍ halda þverfaglegar fimm vinnusmiðjur fyrir unglinga í 8., 9. og 10. bekk í grunnskólum Fljótsdalshéraðs; Egilsstaðaskóla, Fellaskóla og Brúarásskóla, þar sem áhersla verður lögð á samruna listgreina. Listasmiðjurnar fara fram í Egilsstaðaskóla og Sláturhúsinu

Afurðir vinnusmiðjanna verða svo verða settar upp sem listasýning þar sem allir eru hjartanlega velkomnir!

Nína og Gunnlaugur – listasmiðja

Nemendur 7. bekkjar grunnskólanna á Fljótsdalshéraði fara í Skaftfell myndlistarmiðstöð Austurlands á Seyðisfirði, 11. og 12. september þar sem þeim verða kynnt verk myndlistarmannanna Nínu Tryggvadóttur og Gunnlaugs Scheving, skoða þau í samhengi við listasöguna og jafnframt kryfja innihald, tjáningarform og listræna þróun þessara tveggja listamanna.

Hver nemandi fær eftirprentun af einu verki frá hvorum listamanni til að vinna með. Myndinni er skipt upp í búta og mun hver og einn nemandi fá úthlutaðan einn bút úr myndinni til að stækka upp. Í lokin eru allir bútarnir festir saman þ.a. útkoman verður stór eftirmynd af frummyndin sem unnið var með.

„Hvað ef?“ - listasmiðja

Emelía Antonsdóttir Crivello stýrir sviðslistasmiðju fyrir nemendur 6. bekkjar grunnskólanna á Fljótsdalshéraði dagana 10. til 12. september. Lögð verður áhersla á nemendur vinni á skapandi hátt með sviðslistir, tónlist og myndlist undir þemanu „hvað ef?“. Saman vinna nemendur og kennarar frumsamið sviðsverk þar sem þessum miðlum er blandað saman. Smiðjan fer fram í Fellaskóla og íþróttahúsinu í Fellabæ. Henni lýkur með sýningu 12. september.

Myndskreytingar – listasmiðja

Nemendur 5. bekkjar grunnskólanna á Fljótsdalshéraði gera stuttar sögur eða frásagnir. Dagana 11. og 12. september stýrir Lára Garðarsdóttir listasmiðjum þar sem nemendurnir búa til litla myndasögu í þremur til sex römmum. Á þann hátt kynnast þeir myndmálinu og framvindu myndasögugerðar.

Verk nemendanna verða til sýnis í Kaffiteríunni á Egilsstaðaflugvelli dagana 12. til 19. september.

Listverkefni 1. til 4. bekkjar

Nemendur 1. til 4 bekkjar grunnskólanna vinna að listtengdum verkefnum í skólastofum sínum með umsjónarkennurum sínum í september.

Söngur grunn- og leikskólabarna

Elsti árgangur leikskólanna og 1. bekkur grunnskólanna æfir og flytur lögin Ég heyri svo vel og Ef þú ert súr, eftir Ólaf Hauk Símonarson, við undirleik kennara og nemenda tónlistarskólanna. Lögin eru útsett af Sigursveini Magnússyni. Lögin verði flutt á smiðjudegi leikskólanna í Sláturhúsinu menningarsetri 19. september.

Smiðjudagur leikskólanna

Næselsti árgangur leikskólanna vinnur listtengd verkefni í Sláturhúsinu menningarsetri 19. september undir stjórn Sigrúnar Hönnu Klausen. Verk nemendanna verða sýnd í Sláturhúsinu klukkan 16 þennan dag.


Menningarseptember í Sláturhúsinu menningarsetri

Gull og gersemar og Aron Kale

Dagana 11. til 28. september verður leikfangasýningin Gull og gersemar og myndlistarsýning með verkum Arons Kale til sýnis í Frystiklefanum í Sláturhúsinu menningarsetri. Sýningarnar eru opnar fyrir almenning frá klukkan 13. til 16 virka daga. Báðar sýningarnar bjóða upp á fræðslu og skapandi vinnu og henta því vel fyrir leik- og grunnskólabörn.

Vera og vatnið

Danssýningin Vera og vatnið verður flutt í Sláturhúsinu menningarsetri sunnudaginn 23. september kl. 14. Sýningin er fyrir börn frá eins árs aldri um Veru og upplifun hennar á veðrum og vindum. Sýningin er 25 mínútur að lengd og við sýningartíma bætist leikstund þar sem börnin fá að skoða leikmyndina og hitta veruna Veru. Aðgangseyrir er 1.000 krónur en ókeypis er fyrir 16 ára og yngri.

Sögustund

Bernd Ogrodnik brúðulistamaður hjá Brúðuheimum verður með sýninguna Sögustund í Sláturhúsinu menningarsetri 25. september. Um tvær sýningar er að ræða fyrir 5 og 6 ára börn á Fljótsdalshéraði og Seyðisfirði…., klukkan 10 og 11.
Sýningin er brot úr sýningu sem Bernd er búinn að ferðast með um allan heim þar sem sýningin hefur verið sýnd í stórum leikhúsum og á virtum leiklistarhátíðum.

Tónlistardagur og tónleikar

Laugardaginn 29. september standa Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Tónlistarmiðstöð Austurlands fyrir tónlistarsmiðjum og tónleikum fyrir alla sem eru í hljómsveit eða langar að vera í hljómsveit. Hljóðfæradjamm, smiðjur og spjall við tónlistarfólk. Kira Kira verður á staðnum. Dagskrá þessi, sem stendur yfir frá klukkan 15 til 21:30, miðast við 13 til 20 ára en ekkert aldurstakmark.


Heimasíða BRAS menningarhátíðar barna og ungmenna á Austurlandi er www.bras.is og þá má fylgjast með á Facebook #brasausturland