Borgarafundur um Ormsteiti

Ormsteiti er haldið ár hvert á Fljótsdalshéraði og nú er undirbúningur að hefjast á fullum krafti.  Að þessu sinni ber hátíðin upp frá 14. – 23. ágúst næstkomandi.  Borgarafundur verður haldin um hátíðina í Valaskjálf, þriðjudaginn 12. maí og hefst fundurinn kl. 20.00.

Forsvarsmenn fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka eru sérstaklega hvattir til að mæta.  Þar sem efnahagsástandið hefur verið bágborið síðustu mánuði þá eru allir hvattir til þess að koma með tillögur um hvernig hægt er að viðhalda þessari frábæru hátíð.  Einnig er mikilvægt fyrir stjórnendur Ormsteitis að fá tillögur frá forsvarsmönnum atvinnurekanda um hver sýn þeirra er á virði og mikilvægi hátíðarinnar fyrir samfélagið. 
Íbúar sveitarfélagsins eru einnig hvattir til þess að koma og segja sitt álit, sem og að kynna sér hvernig stjórn Forskots/Ormsteitis sér fyrir sér hátíðina í ár með kynningu.  Ný stjórn verður kynnt til sögurnar sem og nýr framkvæmdastjóri.  Þá verður myndasýning frá hátíðum síðustu ára þar sem brot af því besta verður sýnt. 

Það eru allir hvattir til að koma og segja sína skoðun á hátíðinni og benda á þau tækifæri sem felast í henni fyrir fyrirtæki og íbúa á Fljótsdalshéraði.