Borgarafundur: Fjárhagsáætlunin kynnt

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs boðar til almenns borgarafundar í ráðstefnusal Egilsstaðaskóla (2. hæð) þriðjudaginn 8. nóvember klukkan 20:00. Þar verður kynnt fjárhagsáætlun ársins 2017, ásamt þriggja ára áætlun áranna 2018 – 2020.

Fjárhagsáætlunin var tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 2. nóvember og áformað er að hún verði tekin til síðari umræðu í bæjarstjórn 16. nóvember næstkomandi

Bæjarstjórn hvetur íbúa sveitarfélagsins til að mæta og kynna sér fjárhagsáætlunina og fjármál sveitarfélagsins almennt.