Bókun vegna fyrirhugaðrar hækkunar virðisaukaskatts á ferðaþjónustu

Egilsstaðir: Gatnamót Tjarnarbrautar og Skógarlanda og minnismerki um silfurstökk Vilhjálms Einarsso…
Egilsstaðir: Gatnamót Tjarnarbrautar og Skógarlanda og minnismerki um silfurstökk Vilhjálms Einarssonar í Melbourne.

Fyrir fundi bæjarráðs á mánudaginn lá erindi frá Ívari Ingimarssyni dagsett 4. maí 2017. Á fundinum voru ræddar hugmyndir um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu og áhrif þeirrar hækkunar á ferðaþjónustu á Austurlandi og eftirfarandi bókun gerð:

Bæjarráð gerir sér fulla grein fyrir mikilvægi ferðaþjónustu fyrir sveitarfélagið. Fulltrúar sveitarfélagsins munu hér eftir sem hingað til leitast við að tala fyrir hagsmunum greinarinnar á Austurlandi.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með fjármálaráðherra og ráðherra ferðamála til að ræða mögulegar mótvægisaðgerðir sem styrkt gætu greinina á Austurlandi og treyst hana í sessi sem heilsárs atvinnugrein á svæðinu.