Bókamarkaðurinn að bresta á

Verið er að leggja lokahönd á að setja upp bókamarkað Félags íslenskra bókaútgefanda á Egilsstöðum. Markaðurinn verður opnaður á morgun, 10.apríl að Fagradalsbraut 25.
Opið verður alla daga til 21. apríl frá klukkan 11 til 18. Á milli 4.000 til 5.000 titlar verða í boði og hægt að finna ýmislegt eigulegt og gera góð kaup.