Bloodgroup að gera það gott

Hljómsveitin Bloodgroup frá Egilsstöðum er að gera það gott með nýju plötuna sína Dry Land, en útgáfutónleikar fyrir hana voru haldnir í Iðnó og á Græna Hattinum á Akureyri í síðustu viku. Þrír meðlima hljómsveitarinnar eru frá Egilsstöðum, þau Ragnar, Lilja og Hallur, sem eru systkin, en fjórði meðlimurinn er Færeyingurinn Janus Rasmussen. Bloodgroup spilar á dansleik hjá  ME í Valaskjálf þann 25. mars.

Dry Land fékk frábæra dóma þegar platan kom út í fyrra og Bloodgroup er með tvær tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna, í flokkunum Poppplata ársins og Lag ársins (fyrir lagið "This Heart"). Í viðtalið við Fréttablaðið segir Hallur gott að vera með góða plötu í höndunum og að ýmislegt sé fram undan hjá bandinu. "Við erum að þreifa fyrir okkur með útgáfu í útlöndum og bíðum eftir rétta tækifærinu með það. Við förum í túr til Þýskalands í apríl og reynum að nýta hann eitthvað og svo eru einhverjar tónlistarhátíðir farnar að hlaðast upp fyrir sumarið. Við höldum bara áfram að harka."

Heimasíða hljómsveitarinnar er www.bloodgroup.is

Einnig er hægt að skoða:
www.myspace.com/bloodgroup
www.youtube.com/bloodgroup
www.facebook.com/bloodgroup
www.bloodgroup.de