Benedikt Þ. Guðgeirsson Hjarðar valinn íþróttamaður Hattar 2015

Verðlaunahafar ásamt bæjarstjóra og formanni Hattar.
Verðlaunahafar ásamt bæjarstjóra og formanni Hattar.

Þrettándagleði Fljótsdalshéraðs og Hattar fór fram með hefðbundnu sniði í gær, 6. janúar. Kyndlaganga lagði af stað kl 17.15 frá íþróttahúsinu á Egilsstöðum og gengið var í Tjarnargarðinn þar sem brenna var tendruð. Áætlað er að um 200 manns hafi komið saman og var veður með besta móti. Davíð Þór Sigurðarson, formaður Hattar, setti athöfnina. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, flutti stutt erindi og fór yfir árið. Þeir kynntu síðan  hverjir væru tilnefndir til að vera íþróttamaður Hattar þetta árið en þetta er í 28. sinn sem það val fer fram.

Þá voru starfsmerki Hattar voru veitt í fjórða sinn en þau eru veitt fólki sem hefur lengi unnið óeigingjarnt starf í þágufélagsins.

Hjálmþór Bjarnason hlaut starfsmerki Hattar fyrir vinnu sína í þágu félagsins en hann hefur starfað innan frjálsíþróttagreinarinnar í mörg ár, gegndi gjaldkerastöðu í frjálsíþróttadeild í rúmlega 6 ár. Hjálmþór hefur einnig verið starfsmaður keppnismóta á Fljótsdalshéraði í mörg ár.

Hrafnhildur S. Þórarinsdóttir hlaut starfsmerki Hattar fyrir vinnu og stjórnarsetu en hún hefur meðal annars gegnt formannstöðu hjá fimleikadeild og skíðadeild. Einnig hefur hún setið í yngraflokkaráði knattspyrnudeildar og verið virkur þátttakenda í foreldrastarfi ýmissa deilda. Hrafnhildur hlaut starfsmerki UÍA árið 1999.

Íþróttamaður Hattar árið 2015 var körfuboltamaðurinn, Benedikt Þ. Guðgeirsson Hjarðar.

Benedikt stóð sig vel síðasta keppnistímabil með meistaraflokksliði Hattar og var fyrirliði liðsins þegar Höttur vann 1. deildina með miklum yfirburðum. Benedikt hefur mikið lagt á sig til að ná bættum árangri og er góð fyrirmynd fyrir yngri kynslóðina um hvernig er hægt að leggja sitt að mörkum fyrir félagið, bæði innan sem utan vallar.

Í öðrum greinum voru eftirtaldir fyrir valinu þetta árið.
Blakmaður: Valgerður Dögg Hreinsdóttir
Fimleikamaður: Arna Ormarsdóttir
Frjálsíþróttamaður: Helga Jóna Svansdóttir
Knattspyrnumaður: Runólfur Sveinn Sigmundsson
Körfuboltamaður: Benedikt Þ. Guðgeirsson Hjarðar

Eftir afhendingu var glæsileg flugeldasýning sem Björgunarsveitin á Héraði sá um og sönghópurinn Liljurnar tók lagið.