Bein útsending frá ME og íþróttamiðstöðinni

Þriðjudaginn 8. maí verður bein útsending Kastljóss Sjónvarpsins frá borgarafundi um umhverfis- og atvinnumál vegna Alþingiskosninganna, frá Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum. Útsendingin hefst klukkan 19.35.

Allir áhorfendur eru velkomnir á borgarafundinn.

Fréttir Sjónvarpsins verða sendar út frá Menntaskólanum á Egilsstöðum og hefst útsending þeirra klukkan 19.00, eins og vanalega.

Vegna útsendingarinnar verður íþróttasalurinn í íþróttamiðstöðinni lokaður allan daginn.