Bangsadagur á Hádegishöfða

Í lok síðasta mánaðar var bangsadagur haldinn á Hádegishöfða, í tilefni af  Alþjóðlega bangsadeginum  sem haldinn er þann dag ár hvert. Þessi dagur varð fyrir valinu af bangsavinum vegna þess að þetta er afmælisdagur Theodore (Teddy) Roosevelt fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Roosevelt var mikill skotveiðimaður og sagan segir að eitt sinn þegar hann var á bjarnarveiðum hafi hann vorkennt litlum, varnarlausum bjarnarhúni og sleppt honum lausum. Búðareigandi einn í Brooklyn, New York varð svo hrifinn af þessari sögu að hann bjó til leikfangabangsa sem hann seldi sem "Bangsann hans Teddy" (Teddy's Bear). Það má segja að þetta hafi verið upphaf af sigurgöngu leikfangabangsans sem er orðinn vinsæll félagi barna (og fullorðinna) um allan heim.  Bangsaþema var þennan dag á Hádegishöfða og nemendur komu með bangsann sinn í leikskólann.