Bæjarstjórn í beinni í dag

Í dag, 5. september, kl. 17.00 verður haldinn fundur í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Netinu en hægt er að nálgast hana í gegnum borða merktur “Útsending bæjarstjórnarfunda”, hér til hægri á forsíðunni. Einnig er hægt að finna fundinn hér. Vegna villu sem kom upp í útsendingarkerfinu eru tveir fundir merktir nr. 62. Fundurinn í dag er aftastur í röð þeirra funda sem finna má á síðunni.