Bæjarskrifstofunar fengu góða heimsókn

Haldið var upp á dag leikskólans víðsvegar um landið með ýmsum hætti í gær, mánudaginn 6. febrúar.

Börn af leikskólanum Tjarnarlandi heiðruðu bæjarskrifstofur Fljótsdalshéraðs með heimsókn í tilefni dagsins og sungu þar nokkur lög með harmónikkuundirleik, m.a Krummi krúnkar úti og Krummi svaf í klettagjá.

Við þetta tækifæri afhenti Þórey Birna Jónsdóttir leikskólakennari sveitarfélaginu veggspjald frá 7. deild Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda í leikskólum. Björn Ingimarsson bæjarstjóri tók við veggspjaldinu fyrir hönd sveitarfélagsins.