Bæjarráð ítrekar að gert er ráð fyrir rekstrarafgangi í ár

Vegna frétta RÚV um fjárhagsáætlanir sveitarfélaga þar sem ranglega var farið með tölur úr fjárhagsáætlun Fljótsdalshéraðs, vill bæjarráð ítreka að áætlaður afgangur af rekstri ársins 2015 er 27 milljónir.

RÚV hefur leiðrétt fréttaflutning sinn og beðist afsökunar á mistökunum.

Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að fréttaflutningur af fjármálum sveitarfélaga sé vandaður, enda geta rangar upplýsingar haft alvarleg áhrif einkum fyrir sveitarfélög sem eru með skráð skuldabréf á markaði.