Bæjarráð ályktar um jafnréttismál

Í síðustu viku voru kynntar niðurstöður Jafnréttisvogarinnar. Akureyrarbær er það sveitarfélag á Íslandi þar sem staða kynjanna er hvað jöfnust, samkvæmt niðurstöðum hennar. Bæjarráð Fljótsdalshérað ályktaði einnig um jafnréttismál í síðustu viku.

En Fljótsdalshéraðs skipar sér á miðjan lista íslenskra sveitarfélaga samkvæmt Jafnréttisvoginni.

Þetta kom fram á málþingi sem Jafnréttisstofa stóð fyrir á Hótel KEA og er hægt að skoða frekari niðurstöður á heimasíðu hennar. Jafnréttisvogin er Evrópuverkefni sem stýrt er af Jafnréttisstofu.

Jafnréttismál voru líka til umræðu hjá bæjarráði Fljótsdalshéraðs í síðustu viku og eftirfarandi fært þar til bókar: “Bæjarráð leggur áherslu á að því góða jafnréttisstarfi sem unnið hefur verið í sveitarfélaginu verði haldið áfram og farið verði eftir þeirri aðgerðaráætlun sem unnin hefur verið á grunni stefnunnar til að stíga fleiri skref í átt til jafnréttis. Þá leggur bæjarráð áherslu á að þeir sem sitja í nefndum og ráðum á vegum Fljótsdalshéraðs hafi jafnréttisstefnuna og jafnréttissjónarmið ávallt í huga í orðum sínum og verkum.”