Bæjarlistamaður Fljótsdalshéraðs

Menningarnefnd Fljótsdalshéraðs hefur auglýst eftir tilnefningu um bæjarlistamann Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2008 Nafnbótin getur hlotnast einstaklingum eða hópi, en aðeins þeir sem búsettir hafa verið á Fljótsdalshéraði í að minnsta kosti tvö ár koma til greina.

Nafnbótinni fylgir styrkur að upphæð kr. 800.000.

Frestur til að skila inn umsóknum frá listamönnum eða ábendingum um listamenn rennur út 15. júlí 2008.  Umsóknum eða tilnefndingum skal skila til menningarfulltrúa Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir eða á netfangið karen@egilsstadir.is

Í umsókn listamanns skal koma fram á hvern hátt hann hugsi sér að láta sveitarfélagið og íbúa þess njóta listar sinnar.  Ef um ábendingu um listamann er að ræða skal hún rökstudd.

Bæjarlistamaður Fljótsdalshéraðs verður útnefndur á Héraðshátíðinni Ormsteiti 2008 og gildir útnefningin fram að Ormsteiti 2009.

Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Fljótsdalshéraðs er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.fljotsdalsherad.is eða hér.