Markmið sjóðsins er að að efla atvinnutengda starfsemi og búsetu á Fljótsdalshéraði og er honum ætlað að ná tilgangi sínum m.a. með eftirfarandi hætti:
Veita styrki til verkefna einstaklinga, fyrirtækja og stofnana er lúta að atvinnusköpun og atvinnuþróun, hagnýtum rannsóknum og framþróun annarra samfélagsþátta sem áhrif geta haft á atvinnustarfsemi og búsetu í sveitarfélaginu.
Umsækjendur verða að geta sýnt fram á fjárhagslega framtíð verkefnis og getur styrkur Atvinnumálasjóðs aldrei verið meiri en sem nemur 30% af heildarfjármögnun verkefnisins.
Með umsókninni verður að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu og með umsóknum um styrki yfir 250.000 skal einnig fylgja með verkáætlun með tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun), markmiðslýsing og upplýsingar um aðstandendur.
Vakin er athygli á því að ónýttar styrkveitingar renna út að 3 mánuðum liðnum frá afgreiðslu styrks og þarf umsækjandi að endurnýja umsókn með skriflegu erindi til atvinnumálafulltrúa innan 6 mánaða, að öðrum kosti þarf að senda inn nýja formlega umsókn ásamt gögnum.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér samþykktir fyrir sjóðinn svo og úthlutunarreglur á heimasíðu Fljótsdalshéraðs eða fá þær afhentar á skrifstofu sveitarfélagsins. Á sömu stöðum er jafnframt hægt að nálgast umsóknareyðublöð fyrir sjóðinn.
Umsóknarfrestur er til 5. apríl 2013, en umsóknum skal skila á skrifstofu Fljótsdalshéraðs að Lyngási 12, Egilsstöðum.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.