Auglýsing frá yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs

Auglýsing frá yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs um kjörstað við forsetakosningar þann 27. júní 2020.
Við forsetakosningar þann 27. júní 2020 verður kjörstaður á Fljótsdalshéraði í:
Menntaskólanum á Egilsstöðum
Kjörfundur hefst klukkan 09:00 og lýkur klukkan 22:00.

Kjördeildir verða tvær. Í kjördeild nr. 1 verða íbúa á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum R. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum S-Þ og íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.
Kjörskrá vegna forsetakosninga 2020, liggur frammi almenningi til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12, Egilsstöðum á opnunartíma skrifstofu til föstudagsins 26. júní 2020.

Óskum um leiðréttingar á kjörskrá skal komið á framfæri við bæjarstjóra eins fljótt og unnt er. Tekið skal fram að óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hafði ekki borist Þjóðskrá Íslands þann 6. júní 2020.

Á kjördag, með atkvæðagreiðslan stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt í Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Talning atkvæða fyrir kjördæmið í heild fer fram á Akureyri á vegum yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis.

Yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs 15. júní 2020

Stefán Þór Eyjólfsson
Arna Soffía Dal Christiansen
Þórunn Hálfdánardóttir