Auglýsing frá sýslumanni vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu

Auglýsing um utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna sveitarstjórnarkosningar í nýju sveitarfélagi á Austurlandi og heimstjórnarkosninga.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í umdæmi sýslumannsins á Austurlandi vegna sveitarstjórnarkosningar og heimastjórnakosninga laugardaginn 19. september n.k. hófst 25. júlí sl. og fer fram á skrifstofum sýslumannsins á Austurlandi, sem hér segir:

  • Seyðisfjörður, Bjólfsgötu 7, frá klukkan 09:00 til klukkan15:00.
  • Egilsstaðir, Lyngási 15, frá og með 10. ágúst, frá klukkan 09:00 til klukkan 12:00 og frá klukkan 13:00 til klukkan 15:00.
  • Eskifjörður, Strandgötu 52, frá klukkan 09:00 til klukkan 15:00.
  • Vopnafjörður, Lónabraut 2, skv. samkomulagi við kjörstjóra.

Á öðrum stöðum fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram sem hér segir:

  • Borgarfjörður: Hreppstofu, á opnunartíma og skv. samkomulagi við kjörstjóra.
  • Djúpivogur: Bakka 1, 765 Djúpavogi á opnunartíma og hefst skv. nánari ákvörðun sveitarfélagsins.

Kjósanda, sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar, er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun skv. 2. mgr. 58. gr. l. nr. 24/2000. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans og hafa borist hlutaðeigandi kjörstjóra eigi síðar en kl.16 fjórum dögum fyrir kjördag. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla á sjúkrastofnunum mun fara fram í samráði við forstöðumenn þeirra þegar henta þykir og verður ekki auglýst frekar, nema innan stofnananna.

Bent er á að um tvennar aðskildar kosningar er að ræða. Annars vegar listakosningar til sveitarstjórnar í hinu nýja sveitarfélagi og hins vegar óhlutbundnar kosningar til heimastjórna í hverju og einu hinna sameinuðu sveitarfélaga. Í heimastjórnarkosningunni ritar kjósandi fullt nafn og heimilisfang þess sem hann kýs og merkir sendiumslagið: „Heimastjórnarkosning“.

 Sýslumaðurinn á Austurlandi

10. ágúst 2020

Lárus Bjarnason