Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017

Ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2017 lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs þann 7. mars 2018 samþykktur og áritaður af bæjarráði og bæjarstjóra. Samkvæmt sveitarstjórnalögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og er áætlað að síðari umræða fari fram miðvikudaginn 21. mars 2018.

Helstu niðurstöður.
• Rekstrarafkoma Fljótsdalshéraðs árið 2017 var jákvæð um 200 millj. kr. samkvæmt samstæðureikningi sveitarfélagsins en fjárhagsáætlun 2017 með viðaukum gerði ráð fyrir 146 millj. kr. rekstrarafgangi. Rekstarafkoma A hluta var jákvæð um 124 millj. kr. en fjárhagsáætlun með viðaukum gerði ráð fyrir 98 millj. kr. rekstarafgangi.

• Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir, fjármagnsliði og tekjuskatt (EBITDA) í samstæðureikning Fljótsdalshéraðs var jákvæð um 839 millj. kr. á árinu 2017 eða um 20% í hlutfalli af rekstartekjum.
• Í A hluta nam EBITDA 560 millj. kr. á árinu 2017 eða um 15% í hlutfalli af rekstartekjum.

• Hrein fjármagnsgjöld námu 343 millj. kr. í samstæðu A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 368 millj. kr. Hrein fjármagnsgjöld A hluta námu 261 millj. kr. en fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir 263 millj. kr.

• Veltufé frá rekstri nam 634 millj. kr. á árinu 2017 í samstæðu A- og B hluta eða 15% í hlutfalli af rekstartekjum. Veltufé frá rekstri í A hluta nam 422 millj. kr. eða 11% í hlutfalli af rekstartekjum.

• Eigið fé var jákvætt í árslok 2017 um 696 millj. kr. í samstæðu A- og B hluta að teknu tilliti til hlutdeildar minnihluta. Eigið fé A hluta var jákvætt um 479 millj. kr. í árslok 2017.

• Skuldir og skuldbindingar samstæðu A- og B hluta námu í árslok 2017 um 8.143 millj. kr. og lækka um 177 millj. kr. frá árinu 2016. Skuldaviðmið skv. reglugerð um fjárhagsleg viðmið fyrir samstæðureikning A og B hluta er 163% í árslok 2017 en skal skv. sveitarstjórnarlögum vera 150%.