Almennur borgarafundur um ársreikning Fljótsdalshéraðs 2013

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs boða til almenns borgarafundar mánudaginn 28. apríl n.k. kl. 20.00 í fyrirlestrarsal á annarri hæð Egilsstaðaskóla að Tjarnarlöndum 11. Þar verður ársreikningur 2013 kynntur og farið yfir stöðu og framkvæmdir á vegum Fljótsdalshéraðs.

Íbúar eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér málefni sveitarfélagsins.

Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.