Miðvikudaginn 11. mars verður haldinn fundur um framtíðarnýtingu húsnæðis Hallormsstaðaskóla.
Fundurinn verður haldinn í grunnskólanum á Hallormsstað og hefst klukkan 20.
Á fundinum er áformað að kalla eftir hugmyndum íbúa sveitarfélaganna sem eiga skólahúsnæðið um framtíðarnýtingu þess, nú þegar skólahaldi lýkur þar á komandi vori.
Fundurinn er öllum opinn og eru íbúar nærsamfélagsins sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni.
Fimmtudagskvöldið 12. mars verður haldinn upplýsinga- og umræðufundur um fjarskiptasamband á Fljótsdalshéraði í Egilsstaðaskóla og hefst hann klukkan 20.
Þar verður farið yfir mögulegar lagnaleiðir á ljósleiðara um dreifbýli og þéttbýli, ásamt því að velta upp ýmsum lausnum í fjarskiptamálum og kostnaði við þær. Á fundinn koma sérfróðir aðilar um fjarskiptamál, auk þess sem bæjarfulltrúar sitja fyrir svörum.
Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðunni um þessi miklu hagsmunamál.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.