Allt til reiðu í Stafdal þegar snjórinn kemur

Nú styttist í að skíðasvæðið í Stafdal opni. Kortasala er hafin og er nú aðeins beðið eftir nægum snjó í fjallið.  Stefnt er að því að starfsemi Krílaskólans og Ævintýraskólans hefjist í Stafdal 14. janúar. Í Krílaskóla eru krakkar sem eru að ná tökum á skíðamennskunni, en lágmarksaldur er 3 ára. Krílaskólinn fer alfarið fram í barnalyftunni en þar eru lagðar brautir og þrautir til að auka færni krakkanna á skíðum. Markmiðið í Krílaskólanum er að koma krökkum af stað í skíðmennskunni og kynna fyrir þeim þessa skemmtilegu íþrótt.
 
Í Ævintýraskóla eru krakkar á öllum aldri sem eru orðnir nokkuð sjálfbjarga á skíðum og geta bjargað sér sjálfir í stóru lyftunni og brekkunni. Lágmarksaldur í Ævintýraskóla er 4 ára. Markmiðið í Ævintýraskólanum er að allir hafi gaman af skíðmennskunni og verði betri skíðamenn. Í vetrarlok eiga allir að hafa öðlast betri skíðafærni og vera farnir að tileinka sér grunntækni í skíðaíþróttinni. Krakkar geta að sjálfsögðu flust úr krílaskóla yfir í Ævintýraskóla hafi þeir öðlast færni til. Þjálfari í Krílaskóla og Ævintýraskóla er Heiður Vigfúsdóttir.
 
Þjálfarar á æfingum í vetur eru Heiður Vigfúsdóttir, Hildur Gunnlaugsdóttir, Hafþór Valur Guðjónsson og Sigríður Þorláksdóttir Baxter. Æfingahóp er í megindráttum skipt í tvo hópa eftir aldri og getu. Í hóp A eru yngstu æfingakrakkarnir og krakkar sem eru að hefja æfingar á skíðum. Á æfingum hjá hóp A er lögð áhersla á leik og þjálfun í tækniskíðun, en einnig er farið í brautir. Allir í hópnum verða að geta bjargað sér í stóru lyftunni og brekkunum þar. Lágmarksaldur á æfingum er 6 ára. Hópur B samanstendur af krökkum sem hafa æft markvisst skíði í a.m.k. 1-2 ár og hafa náð færni til að fylgja hópnum eftir. Hópnum verður skipt niður í minni hópa eftir aldri og getu.
Rúta fer frá íþróttahúsinu á Egilsstöðum þriðju-, miðviku og fimmtudaga. Mæting í rútu er kl. 16.15. Takmörkuð sæti eru í rútunni og ef hún er fullsetin þurfa foreldrar að skiptast á að keyra og verður útbúin akstursáætlun fyrir foreldra til að skrá sig á.
 
Athugið að börn eru á skíðum á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Nauðsynlegt er að foreldrar yngri barna og þeirra sem eru að byrja séu á staðnum meðan æfingar fara fram. Skylt er að nota hjálm við æfingar.
 
Verðskrá:
Krílaskóli/Ævintýraskóli 12.000 - vetrargjald.
Krílaskóli/Ævintýraskóli 2.000- stakur tími.
Hópur A - 6 klst á viku 28.000
Hópur B – 9 klst á viku 31.000
25% afsláttur fyrir annað barn (yngra) og 40% afsláttur fyrir þriðja barn, fjórða barn frítt.
Lyftukort eru innifalin í æfingagjöldum.
 
Séu óskir hjá iðkendum að mæta á færri æfingar í viku en gert er ráð fyrir í æfingatöflu mun SKÍS verða við þeirri ósk að ákveðnu marki en iðkandi þarf að láta vita við skráningu á hvaða dögum hann mæti á æfingar. Vinsamlega hafið samband við Hugrúnu gjaldkera með frekari útfærslu, hugrun.hj@est.is
Æfingar hefjast um leið og skíðasvæðið í Stafdal opnar, en Krílaskóli og Ævintýraskóli hefjast 14. janúar.
 
Skráning á æfingar og kríla- og ævintýraskóla fer fram á netfangið namskeid@stafdalur.is
 
Sérstakt tilboð er á vetrarkortum til 31. desember 2013 en upplýsingar um það má fá hér
 
Allar nánari upplýsingar um skíðasvæðið eru á www.stafdalur.is