Allt á iði

Dagana 2. – 22. maí fer fram fyrirtækjakeppnin “Hjólað í vinnuna”.  Markmið verkefnisins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, hagkvæmum og umhverfisvænum samgöngumáta. Starfsfólk á skrifstofu Fljótsdalshéraðs hefur skráð sig til þátttöku sem Ormarnir.

Hér má finna veftengingu á árangur Ormanna á vef verkefnisins.
Íbúar og fyrirtæki í sveitarfélaginu eru hvött til þátttöku og nýta um leið gott göngu- og hjólreiðastígakerfi í þéttbýlinu. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á heimasíðunni www.isi.is.