Allir með endurskin – og ljós á hjólin!

Vel sjáanlegir hlauparar á fullri ferð á Egilsstöðum í fyrrasumar.
Vel sjáanlegir hlauparar á fullri ferð á Egilsstöðum í fyrrasumar.

Að gefnu tilefni er fólk minnt á að huga að endurskinsmerkjum. Gangandi og hjólandi vegfarendur sjást mjög illa í myrkri þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða. Þetta á sérstaklega við þegar um dökkan klæðnað er að ræða en þó má í öllum tilfellum fullyrða að endurskinsmerki séu nauðsynleg jafnt á börn sem fullorðna.

Endurskinsmerkin eiga að vera sýnileg og er best að hafa endurskinsmerkin fremst á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau.

Jafnframt er minnt á að ef hjólað er í myrkri eða skertu skyggni þá eiga reiðhjól að vera með ljós að framan, hvítt eða gult og rautt ljós að aftan. Og fyrir hjólreiðamenn og aðra hraðskreiða er endurskinsvesti góður öryggisbúnaður. Þá er hægt að líma endurskinsmerki á hunda- og kattaólar og sjálfsagt er að bregða sérstökum endurskinsborðum um fætur hestsins þegar farið er í reiðtúr.

Auðvelt ætti að vera að finna endurskin við hæfi, því það eru til margar gerðir og stærðir eins og endurskinsvesti, hangandi merki, klemmur og límmerki.