Allir hlæja á öskudaginn

Í dag er öskudagur og því má ætla að undarlegar verur séu á sveimi og heimsæki fyrirtæki og stofnanir, syngi fyrir starfsfólk og þiggi eitthvað gott að launum.

Mismikið er haft við í búningagerð bæði hjá börnum og fullorðnum.

Sögur herma t.d. að starfsfólk bæjarskrifstofunnar hafi notað tækifærið og klætt sig upp á en hér má líta fyrsta hópinn sem heimsótti Safnahúsið í morgun.