Aðalfundur áhugamanna um Hrafnkelssögu

Félag áhugamanna um Hrafnkelssögu og sögutengda ferðaþjónustu á Héraði heldur aðalfund 2014 klukkan 15 sunnudaginn 6. apríl á neðri hæð Gistihússins á Egilsstöðum.

Allit áhugasamir eru velkomnir og félagar hvattir til að mæta.

Dagskrá aðalfundar verður sem hér segir:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf
2. Umræður um verkefni framundan og óskir um þátttöku félaga
3. Önnur mál

Fundarboð stjórnar má sjá hér.