2 violas – 2 lágfiðlur í Sláturhúsinu

Katherine Wren og Charles Ross leika styttri verk og leika af fingrum fram í Sláturhúsinu menningarsetri, þriðjudaginn 2. apríl klukkan 20.

Katherine Wren lagði stund á tónlistarnám við Háskólann í Manchester og Royal Northern College of Music í Englandi og  leikur með   þjóðarsinfóníuhljómsveit Skotlands. Katherine snýr aftur til Íslands en hún heimsótti m.a. Tónlistarskólann á Egilsstöðum 2016 og leikur nú ásamt Charles Ross í Mengi í Reykjavík og á Egilsstöðum.

Charles Ross er og hefur verið, tónlistarlífi á Austurlandi uppspretta innblásturs og tónlistarþekkingar um langa hríð. Hann hefur lagt áherslu á að vinna með tónlist sem dylst í lítt þekktum tónlistarafkimum en höfundarverk hans hafa verið flutt og útvarpað af Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit BBC í Skotlandi.