UMF Þristur hlaut Hermannsbikarinn

Þrautabraut fyrir unga hjólagorma UMF Þristar
Þrautabraut fyrir unga hjólagorma UMF Þristar

Á sambandþingi UÍA sem fram fór á dögunum var tilkynnt að UMF Þristur hlyti Hermannsbikarinn fyrir árið 2019 fyrir útivistarnámskeiðin sem félagið hefur byggt upp með góðum árangri undanfarin ár.

Bikarinn gáfu Dóra Gunnarsdóttir og Guðmundur Hallgrímsson til minningar um Hermann Níelsson og er hann árlega afhentur félagi, deild eða einstaklingi sem hefur staðið að nýsköpun, þróun eða uppbygginu í sínu starfi.