Óhefðbundinn 17.júní á Héraði

Íbúar sveitarfélagsins hvattir til flagga íslenska fánanum sem víðast 17.júní og njóta dagsins.
Íbúar sveitarfélagsins hvattir til flagga íslenska fánanum sem víðast 17.júní og njóta dagsins.

Vegna þeirra takamarkana sem Covid 19 setur um hópamyndum og nálægðarmörk hefur verið ákveðið að Þjóðhátíðardagur Íslendinga á 17. júní verði ekki haldinn hátíðlegur með formlegri dagskrá að þessu sinni á Fljótsdalshéraði. Samkomubann sem sett var 25. maí nær til viðburða þar sem fleiri en 200 manns koma saman og gildir það til 21. júní. Hátíðarhöldin hafa undanfarin ár farið fram í Tjarnargarðinum í umsjón fimleikadeildar Hattar.

Í tilefni dagsins eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til flagga íslenska fánanum sem víðast og njóta dagsins. Til dæmis má vekja athygli á því að fjórar sýningar verða opnaðar á 17. júní, í Safnahúsinu og í Sláturhúsinu, þar sem allir eru velkomnir og ókeypis er inn á.

Flugdrekabókin í Safnahúsinu

Klukkan 14:00 verður opnuð í Safnahúsinu ný sýning með verkum listamannsins Guy Stewart. Sýningin ber yfirskriftina Flugdrekabók og er óður til bókarinnar og bókmenningar, íhuguls lesturs og frelsis ímyndunaraflsins. Sýningin samanstendur af sjö flugdrekabókum sem hver og ein er tileinkuð fornu bókmenntaverki. Þá verður nýtt krakkahorn Minjasafnsins formlega tekið í notkun en þar mun hreinkýrin Hreindís taka vel á móti krökkum í sumar með margvíslegum fróðleik og afþreyingu.

Sumarsýning 1, saltfiskur og Austfirskt fullveldi í Sláturhúsinu

Í Sláturhúsinu opnar Menningarmiðstöðin fyrri sumarsýningu ársins, sem ber heitið Tengsl og er yfirlitssýning á verkum Ríkharðs Valtingojer. Ríkharður Valtingojer bjó lengi á Stöðvarfirði en lést á síðasta ári og ferill hans spannar allt frá málverki til grafíkur. Sýningin opnar klukkan 15:00 og utandyra verður uppákoma fyrir börn á öllum aldri.

Klukkan 16:30 mun tékkneska listakonan Monica Frycova, sem búsett er á Seyðisfirði, segja frá verki sínu „Pure Mobile vs. Dolce Vita“, sem að er í grunninn ferðalag hennar á mótorhjóli, með íslenskan saltfisk í farteskinu, frá Borgarfirði eystri til Portúgal. Leiðina gegnum Evrópu skrásetti hún með ljósmyndum, texta og teikningum í bók, sem kom út á síðasta ári. Monica ætlar að sýna okkur kvikmynd sem að fjallar um ferðalagið og spjalla við okkur ferðina og lífið. Hver veit, kannski verður boðið upp á smakk af borgfirskum saltfiski líka.

Á dögunum hlutu Minjasafn Austurlands, Tækniminjasafnið á Seyðisfirði, Sjóminjasafnið á Eskifirði og Gunnarsstofnun tilnefningu til Íslensku safnaverðlaunanna fyrir sýninguna „Austfirskt fullveldi – sjálfbært fullveldi?“. Sýningin var hluti af stóru samstarfsverkefni sem níu mennta-, menningar- og rannsóknarstofnanir á Austurlandi tóku höndum saman um í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands árið 2018. Á sýningunni eru aðstæður barna á árunum 1918 og 2018 bornar saman og speglaðar við heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Í tilefni af tilnefningunni hefur sýningin nú verið sett upp að nýju í Sláturhúsinu.