- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Atvinnu- og menningarnefnd Fljótsdalshéraðs auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs með umsóknarfresti til og með 16. desember 2019. Umsækjendur verða að tengjast Fljótsdalshéraði með búsetu, eða með því að viðburðurinn fari fram á Fljótsdalshéraði eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi á Fljótsdalshéraði. Stefnt er að því að afgreiðsla styrkumsókna muni liggja fyrir fyrir 1. febrúar 2020.
Umsækjendur er hvattir til að kynna sér Reglur um úthlutun menningarstyrkja Fljótsdalshéraðs á heimasíðu sveitarfélagsins.
Sótt er um styrk með rafrænum hætti á Íbúagátt sveitarfélagsins og fer innskráning þar fram með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.
Skrifstofustjóri Fljótsdalshéraðs