- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Borgarafundi um ársreikning Fljótsdalshéraðs vegna 2015, sem vera átti í kvöld, þriðjudaginn 10. maí, er frestað til þriðjudagsins 17. maí kl. 20.00. Fundurinn verður í Egilsstaðaskóla. Þar verður farið yfir ársreikning Fljótsdalshéraðs vegna ársins 2015, auk þess sem framundan er á yfirstandandi ári og næstu árum, varðandi rekstur og framkvæmdir sveitarfélagsins.
Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta á fundinn og kynna sér fjárhagsstöðu og rekstur Fljótsdalshéraðs og taka þátt í umræðum um málefni sveitarfélagsins.