- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Auglýsing frá yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs um kjörstað við forsetakosningar þann 25. júní 2016.
Við forsetakosningar þann 25. júní 2016 verður kjörstaður á Fljótsdalshéraði í;
Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Kjörfundur hefst kl. 09.00 og lýkur kl. 22.00
Kjördeildir verða tvær. Í kjördeild nr. 1 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum A til og með bókstafnum R. Í kjördeild 2 verða íbúar á Egilsstöðum sem búa við götur, hverra nöfn byrja á bókstafnum S - Þ og íbúar í Fellabæ, Eiðum og Hallormsstað og í dreifbýli á Fljótsdalshéraði.
Kjörskrá vegna forsetakosninga 2016, liggur frammi almenningi til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins að Lyngási 12 á Egilsstöðum á opnunartíma skrifstofu til föstudagsins 24. júní 2016.
Óskum um leiðréttingar á kjörskrá skal komið á framfæri við bæjarstjóra eins fljótt og unnt er. Tekið skal fram að óheimilt er að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hafði ekki borist Þjóðskrá þann 4. júní 2016.
Á kjördag, meðan atkvæðagreiðsla stendur yfir, mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur sitt í Menntaskólanum á Egilsstöðum.
Talning atkvæða fyrir kjördæmið í heild fer fram á Akureyri á vegum Yfirkjörstjórnar Norð- austurkjördæmis.
Yfirkjörstjórn Fljótsdalshéraðs 15. júní 2016.
Bjarni G Björgvinsson
Einar Rafn Haraldsson
Þórunn Hálfdánardóttir