- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Mannlíf
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs boðar hér með til almenns borgarafundar í Egilsstaðaskóla mánudaginn 10. apríl kl. 20:00.
Á fundinum verður kynntur ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2016 og einnig farið yfir stöðu og horfur í fjármálum sveitarfélagsins.
Á fundinn koma einnig fulltrúar frá HSA og fjalla um stöðu og starfsemi heilbrigðisþjónustu á Egilsstöðum og á Austurlandi.
Íbúar sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta og kynna sér ofangreind mál og taka þátt í umræðum um þau.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs.