Upplýsingar vegna Covid-19

Staða mála er enn óbreytt á Austurlandi hvað smit varðar, sjö eru í einangrun og hefur ekki fjölgað síðastliðna sex sólarhringa. Engin ný smit hafa komið upp.

 Þrjátíu og átta eru í sóttkví og fækkað um sextán frá í gær.

 Á sama tíma og niðurstöður gefa ágætar vonir um þróun smita minnir aðgerðastjórn Almannavarnanefndar Austurlands á að lítið má út af bregða til að þeim fjölgi hratt.

 Þar sem góð vísa er aldrei of oft kveðin er dags- og páskaskipan því þessi -

  •   Verum heima
  •  Virðum tveggja metra regluna
  •  Förum sjaldan í matvörubúðir, gerum stærri innkaup í hvert sinn
  •  Verum góð við afgreiðslufólk, fylgjum leiðbeiningum með brosi á vör
  •  Gerum þetta saman

 Hvað varðar niðurstöður úr skimun Íslenskrar erfðagreiningar þá eru þær ókomnar. Þær munu birtar um leið og berast.“