Lífrænt heimilissorp

Hnífapör er ekki lífræn. Og eiga því ekki heima í lífrænu tunnunni.
Hnífapör er ekki lífræn. Og eiga því ekki heima í lífrænu tunnunni.

Eins og margir vita er allt lífrænt heimilissorp sem safnað er á Fljótsdalshéraði nú flutt til Moltu ehf. í Eyjafirði. Þar er unnin molta sem m.a. hefur staðið íbúum á Fljótsdalshéraði til boða af og til í sumar og verður í boði nú í haust.

Upp á síðkastið hefur nokkuð borið á því að aðskotahlutir s.s. hnífapör (sjá meðfylgjandi mynd) og aðrir smáir málmhlutir, sem skemmt geta vélar Moltu, séu í sorpinu.

Íbúar og fyrirtæki eru hvött til að vanda flokkun og sjá til þess að í brúnu tunnurnar fari einungis lífrænt heimilissorp. Nánari upplýsingar um hvað má fara í brúnu tunnurnar má finna á síðu 11 í sorphirðuhandbókinni sem er m.a. á heimasíðu sveitarfélagsins eða hér.