Hjólað í vinnuna hafið

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu Hjólað í vinnuna um allt land í þrjár vikur í maí ár hvert. Verkefnið hefur staðið yfir frá árinu 2003 og á síðasta ári voru tæplega 400 vinnustaðir skráðir til leiks.

Meginmarkmið ,,Hjólað í vinnuna” er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskaut/hjólabretti o.s.frv. Þeir sem nota almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin/hjóluð er til og frá stoppistöð. Skráningar hafa staðið yfir í 2 vikur en hægt er að skrá sig og sitt lið til leiks fram að lokadegi, 23. maí.

Hér má fá frekari upplýsingar um verkefnið.