Eitt af árlegum verkefnum Íþrótta- og Ólympíusambands Ísland er heilsu- og hvatningarverkefnið Hjólað í vinnuna. Verkefnið hefur staðið yfir frá árinu 2003 og sífellt taka fleiri vinnustaðir þátt. Í ár fer Hjólað í vinnuna fram frá 6. – 26. maí, en hægt er að skrá sig fram á síðasta dag.
Við vitum að aukin hreyfing bætir, hressir og kætir og til að toppa‘ða þá hefur hún líka góð áhrif á umhverfið ef við skiptum út bílferðunum. Því er um að gera fyrir bæjarbúa alla að taka þátt.
Meginmarkmið ,,Hjólað í vinnuna” er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Allir sem nýta eigin orku til að ferðast til og frá vinnu eru gjaldgengir þátttakendur þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskaut/hjólabretti o.s.frv. Þeir sem nota almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin/hjóluð er til og frá stoppistöð. Skráningar eru fyrir löngu hafnar, en hægt er að skrá sig og sitt lið til leiks fram að lokadegi, 26. maí.
Hægt er að fá allar upplýsingar um verkefnið á vefsíðu verkefnisins, www.hjoladivinnuna.is.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
Lyngási 12, 700 Egilsstaðir
fljotsdalsherad@fljotsdalsherad.is
kt: 481004-3220
Opnunartímar skrifstofu
8:00 - 15:45 alla virka daga
Persónuverndarfulltrúi Fljótsdalshéraðs hefur eftirlit með að farið sé að persónuverndarlögum í starfsemi sveitarfélagsins
Með íbúagátt er íbúarnir komnir í beint samband við sveitarfélagið sitt með rafrænum hætti.
Þjónustugátt fyrir kjörna fulltrúa Fljótsdalshéraðs.
Upplýsinga- og þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu, aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera o.fl.