Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

171. fundur 20. febrúar 2013 kl. 17:00 - 18:45 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Stefán Bogi Sveinsson forseti
  • Gunnar Jónsson aðalmaður
  • Eyrún Arnardóttir aðalmaður
  • Páll Sigvaldason aðalmaður
  • Sigrún Blöndal 2. varaforseti
  • Katla Steinsson aðalmaður
  • Árni Kristinsson aðalmaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Ragnhildur Rós Indriðadóttir aðalmaður
  • Sigvaldi H Ragnarsson 1. varaforseti
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Starfsáætlanir nefnda Fljótsdalshéraðs 2013

Málsnúmer 201301257

Undir þessum lið mætti Ester Kjartansdóttir formaður umhverfis- og héraðsnefndar og kynnt starfsáætlun sinnar nefndar.

Til máls tóku undir þessum lið Sigrún Blöndal, sem bar fram fyrirspurn og Ester Kjartansdóttir sem svaraði fyrirspurn.

2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 225

Málsnúmer 1301022

Til máls tóku Gunnar Jónsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Katla Steinsson, sem vakti athygli á vanhæfi sínu undir liðum 2.4 og 2.7 og úrskurðaði forseti um vanhæfi hennar. Páll Sigvaldason, sem vakti athygli á vanhæfi sínu undir liðum 2.4 og 2.7 og úrskurðaði forseti um vanhæfi hans. Ragnhildur Rós Indriðadóttir, sem ræddi liði 2.12. og 2.24. Sigrún Blöndal, sem ræddi lið 2.29. Katla Steinsson, sem ræddi lið 2.25. Páll Sigvaldason, sem ræddi lið 2.12. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi liði 2.1 og 2.12, Ragnhildur Rós Indriðadóttir, serm ræddi lið 2.12. Sigvaldi Ragnarsson, sem ræddi lið 2.12, Gunnar Jónsson, sem ræddi liði 2.12 og 2.29. Eyrún Arnardóttir, sem ræddi liði 2.12 og 2.35. Árni Kristinsson, sem ræddi lið 2.1 og 2.12 og Björn Ingimarsson, sem ræddi lið 2.35.

Fundargerðin staðfest.

2.1.Fjármál 2013

Málsnúmer 201301002

Á fundi bæjarráðs lagði Björn Ingimarsson bæjarstjóri fram og kynnti undirritaðan samning við Ekkjufellssel vegna leigu á lóðum og byggingarlandi í Fellabæ.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn samninginn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fyrir fundi bæjarráðs lá erindi frá Eyjólfi Þorkelssyni varðandi ráðstefnu um héraðslækningar sem stendur til að halda á Austurlandi. Óskað er eftir stuðningi sveitarfélagsins við ráðstefnuhaldið.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Samkvæmt tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að veita bæjarstjóra umboð til að semja um framkvæmdina. Fjármunir , allt að kr. 100.000 verði teknir af lið 21-50.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.2.Fjárhagsáætlun 2014

Málsnúmer 201302034

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn samþykkir tillögur bæjarráðs um undirbúningsvinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2014 og gerð áætlunar vegna stærri viðhalds- og fjárfestingaverkefna næstu ár.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.3.Atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs - 86

Málsnúmer 1301017

Fundargerðin staðfest.

2.4.Uppbygging sölumiðstöðvar Húss handanna / Anddyri Austurlands

Málsnúmer 201301023

Lagt fram til kynningar.

2.5.Hlutafjársöfnun til að halda áfram rekstri gróðrarstöðvar á Valgerðarstöðum

Málsnúmer 201301219

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn telur mikilvægt að sú uppbygging, sem átt hefur sér stað, ásamt þeirri þekkingu og reynslu sem myndast hefur með rekstri þessarar stöðvar, glatist ekki úr sveitarfélaginu.

Einnig er mikilvægt að verja þá nýsköpun og þróun sem áætlanir félagsins byggjast á. Bæjarstjórn samþykkir að Gróðrarstöðinni Barra ehf verði lagt til hlutafé allt að kr. 5.000.000, sem tekið verður úr atvinnumálasjóði. Skilyrði er að takist að safna lágmarks hlutafé.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.6.Atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs - 87

Málsnúmer 1302002

Fundargerðin staðfest.

2.7.Uppbygging sölumiðstöðvar Húss handanna / Anddyri Austurlands

Málsnúmer 201301023

Í vinnslu.

2.8.Þjónustukönnun október-nóvember 2012

Málsnúmer 201212026

Lagt fram til kynningar.

2.9.Atvinnumálasjóður 2013

Málsnúmer 201211032

Í vinnslu.

2.10.Þjónustusamfélagið Fljótsdalshérað

Málsnúmer 201211033

Í vinnslu.

2.11.Vaxtarsamningur Austurlands, umsóknir 2013

Málsnúmer 201301010

Lagt fram til kynningar.

2.12.Þjóðbraut norðan Vatnajökuls

Málsnúmer 201302030

Á fundi atvinnumálanefndar gerði formaður grein fyrir hugmyndum um veglagningu norðan Vatnajökuls með tengingu inn á Kárahnjúkaveg og í Svartárkot í Bárðardal.

Bæjarráð tók undir með atvinnumálanefnd og telur að slíkur vegur myndi stuðla að miklum tækifærum í ferðaþjónustu á Austur- og Norðurlandi ásamt því að stytta ferðatíma til höfuðborgarsvæðisins verulega.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn samþykkir að málinu verði vísað til endurskoðunar aðalskipulags Fljótsdalshéraðs. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að hafa samband við þau sveitarfélög sem land eiga að væntanlegum hálendisvegi og leita eftir afstöðu þeirra til verkefnisins og samráði varðandi skipulagsmál á umræddu svæði.

Samþykkt með handauppréttingu með 8 atkvæðum, en 1 var á móti (RRI)

2.13.Nordiske træbyer

Málsnúmer 201204102

Lagt fram til kynningar.

2.14.Fundur Byggingarnefndar um hjúkrunarheimili 25.01.2013

Málsnúmer 201301218

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.15.Fundur Byggingarnefndar um hjúkrunarheimili 11.02.2013

Málsnúmer 201302033

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.16.Fundargerð 140. fundar stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

Málsnúmer 201301229

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.17.Fundargerð 141. fundar stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

Málsnúmer 201301230

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.18.Fundargerð 142. fundar stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

Málsnúmer 201302001

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.19.Fundargerð 143. fundar stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

Málsnúmer 201302045

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.20.Fundargerðir SO 2013

Málsnúmer 201301244

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

2.21.Fundargerð 803.fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 201302037

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn tekur undir bókun stjórnar Sambands Ísl. sveitarfélaga undir lið 3 í fundargerðinni, varðandi hlutdeild sveitarfélaga í skráningargjöldum nýrra fasteigna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.22.Aðalfundur Reiðhallarinnar Iðavöllum ehf.

Málsnúmer 201301035

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.23.Starfshópur um stjórnfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs

Málsnúmer 201301248

Í vinnslu.

2.24.Málefni Safnahúss

Málsnúmer 201211102

Á fundi bæjarráðs var kynntur fundur fulltrúa Fljótsdalshéraðs með stjórn Héraðsskjalasafnsins, en á honum kom fram sameiginlegur skilningur stjórnar og fulltrúa sveitarfélagsins á stöðu mála vegna hugmynda sem bæjarráð hefur reifað um skipulagsbreytingar

í rekstri safna í Safnahúsinu á Egilsstöðum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að óska eftir afstöðu annarra aðildarsveitarfélaga til hugmynda er varða m.a. sameiginlega framkvæmdastjórn safna í húsinu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.25.Atvinnustefna Vatnajökulsþjóðgarðs

Málsnúmer 201302015

Á fundi bæjarráðs var lagður fram tölvupóstur frá Birni Ármanni Ólafssyni, dags. 4. febrúar 2013 með drögum að atvinnustefnu Vatnajökulsþjóðgarðs og tillögum að breytingum á reglugerð um stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn tekur undir tillögu að reglugerðarbreytingu sem kynnt var á fundi bæjarráðs. Jafnframt óskar bæjarstjórn eftir að komið verði á fundi fulltrúa svæðisráðs og sveitarfélagsins til að ræða fyrirliggjandi drög að atvinnustefnu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.26.Votihvammur/erindi frá íbúum

Málsnúmer 201212016

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

2.27.Frumvarp til sveitarstjórnarlaga,449.mál. /Til umsagnar

Málsnúmer 201302010

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

2.28.Frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 204.mál /Til umsagnar

Málsnúmer 201302013

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

2.29.Frumvarp til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 174.mál /Til umsagnar

Málsnúmer 201302014

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og telur þá hugmynd sem fram kemur í tillögunni allsendis ótímabæra og að skynsamlegra og hagkvæmara sé að nýta það fjármagn sem til staðar er til að byggja upp, styrkja og markaðssetja þá millilandaflugvelli sem þegar eru í landinu. Benda má tillöguflytjendum á að fleiri en ein aðkomuleið er að Vatnajökulsþjóðgarði og millilandaflugvelli er að finna bæði norðan hans og austan.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.30.Beiðni um lækkun á fasteignaskatti

Málsnúmer 201302016

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

2.31.Eignarhaldsfélagið Fasteign, tilkynning um breytingu á félagaformi

Málsnúmer 201302017

Lagt fram til kynningar.

2.32.Starfsemi félagsheimilanna

Málsnúmer 201201262

Í vinnslu.

2.33.Vinabæjarmót í Sorö 14.-16. júní 2013

Málsnúmer 201208021

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn samþykkir að tveir fulltrúar Fljótsdalshéraðs ásamt mökum, fari sem fulltrúar Fljótsdalshéraðs á vinabæjarmót sem halda á í Sorö í Danmörku 14. - 16. júní nk.

Bæjarstjórn samþykkir jafnframt inntöku sveitarfélagsins Rassepori Kommune í Finnlandi í vinabæjarakeðjuna.

Samþykkt með handauppréttingu með 8 atkvæðum en 1 sat hjá (EA)

2.34.Tilkynning um nýjan eiganda á leiguhúsnæði/Skógarlönd 3b

Málsnúmer 201302027

Lagt fram til kynningar.

2.35.Frumvörp til laga um búfjárhald og velferð dýra /til umsagnar

Málsnúmer 201302032

Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.

2.36.Þjónustukönnun október-nóvember 2012

Málsnúmer 201212026

Í vinnslu.

2.37.Skólaskrifstofa Austurlands

Málsnúmer 201205180

Skipan bæjarráðs á starfshópnum staðfest.

2.38.Hóll í Hjaltastaðaþinghá, umleitan um leigu

Málsnúmer 201209134

Á fundi bæjarráðs voru kynnt drög að leigusamningi sem gerð hafa verið á grundvelli áður samþykktra útgangspunkta.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn samninginn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.39.Laufás Hjaltastaðaþinghá /Kaup á jörð

Málsnúmer 201301153

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs mælir með því að Guðmundur Karl Sigurðsson fái keypta ríkisjörðina Laufás í Hjaltastaðaþinghá á Fljótsdalshéraði, auk Nýbýlalands 3. Hann hefur setið jörðina lengur en sjö ár og þar með öðlast kauprétt á henni. Guðmundur hefur verið með lögheimili sitt og fjölskyldu sinnar í Laufási frá því hann fékk jörðina leigða. Jörðin hefur verið vel setin þann tíma og var hún nýlega skoðuð af landskoðunarmönnum. Í Laufási er rekið blandað bú og eru ábúendur með fasta búsetu þar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.40.Búfjáreftirlit

Málsnúmer 201302035

Í vinnslu.

2.41.Tjarnarskógur - Skógarland - húsnæðismál

Málsnúmer 201302044

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn fagnar því að allar niðurstöður sem borist hafa úr rannsóknum á byggingu leikskólans Tjarnarskógar við Skógarland, benda til þess að ekki sé myglusvepp að finna í húsinu. Enn er beðið niðurstöðu úr greiningu rannsóknarstofu á sýnum sem tekin voru við skoðun á húsinu sem framkvæmd var í janúar, en engar vísbendingar komu fram við þá skoðun sem bentu til myglu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.42.Þjónusta vegna andláts,kistulagninga- og útfara í umdæmi HSA á Egilsstöðum

Málsnúmer 201302083

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og leggur til að kannaðir verði möguleikar á því að finna líkgeymslu og kapellu stað í norðurenda núverandi byggingar HSA, í tengslum við aðkomu sjúkrabíla og nýbyggingu hjúkrunarheimilis. Bæjarstjóra er falið að ræða við fulltrúa HSA vegna málsins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.43.Uppbygging ljósnets á landsbyggðinni

Málsnúmer 201302084

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn fagnar þessari jákvæðu þróun í fjarskiptamálum á landsbyggðinni, en bendir á hvað Fljótsdalshérað varðar, nauðsyn þess að hraðað verði uppbyggingu til annarra staða, svo sem þéttbýlisins á Hallormsstað sem og í dreifbýli sveitarfélagsins, þar sem netsamband er víða ófullnægjandi.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.Skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs - 89

Málsnúmer 1302004

Til máls tóku: Björn Ingimarsson sem kynnti lið 3.18. Sigvaldi Ragnarsson, sem lýsti vanhæfi sínu vegna liðar 3.18 og úrskurðaði forseti um vanhæfi hans.

Sigvaldi Ragnarsson, sem kynnti síðan fundargerðina, nema lið 3.18. og lagði fram drög að bókunum. Eyrún Arnardóttir, sem ræddi liði 3.19 og 3.22. Sigrún Blöndal sem vakti athygli á vanhæfi sínu undir lið 3.17 og úrskurðaði forseti um vanhæfi hennar og Árni Kristinsson, sem ræddi liði 3.15 og 3.19.

Fundargerðin staðfest.

3.1.Eftirlitsskýrslur Heilbrigðiseftirlits 2013

Málsnúmer 201301099

Lagt fram til kynningar.

3.2.Laufskógar 1, svalir kostnaðaráætlun

Málsnúmer 201302069

Lagt fram til kynningar.

3.3.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 118

Málsnúmer 1301018

Fundargerðin staðfest.

3.4.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201301186

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.5.Umsókn um byggingarleyfi /Breytingar

Málsnúmer 201301108

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.6.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201301227

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.7.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201301224

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.8.Fjallaskáli í Fjallaskarði, ósk um endurupptöku máls

Málsnúmer 201009077

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.9.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201301223

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.10.Umsókn um byggingarleyfi/Breytingar

Málsnúmer 201301228

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.11.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201211114

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.12.Tjarnarlönd 21, reyndarteikningar

Málsnúmer 201302020

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.13.Hótel Hallormur, reyndarteikningar

Málsnúmer 201302021

Afgreiðsla byggingarfulltrúa staðfest.

3.14.Starfshópur um stjórnfyrirkomulag Vatnajökulsþjóðgarðs

Málsnúmer 201301248

Lagt fram til kynningar.

3.15.Fjögur deiliskipulög endurauglýst

Málsnúmer 201212033

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti þann 05.12.2012 að endurauglýsa tillögu að skipulagi fyrir Lagarás 2-12 Fljótsdalshéraði. Tillagan sem sett var fram á uppdrætti dags. 05.03.2008 var auglýst skv. 41. gr. Skipulagslaga, frá 12.12.2012 til 23.01.2013 og frestur til að skila inn athugasemdum var til 23.01.2013.

Ein athugasemd, dags. 13.01.2013, barst frá eftirtöldum íbúum við Lagarás 2:
Sigríður Hrólfsdóttir kt.150227-2919.
Jóhannes Jóhannsson kt.071241-5869.
Helgi Hallgrímsson kt.110635-2309.
Helga Sigríður Gunnlaugsdóttir kt.160762-5359.
Ingileif Andrésdóttir kt.110138-4079.
Óskar Björgvinsson kt.040845-2679 fyrir hönd Margrétar Björgvinsdóttur.

1. Gerð er athugasemd við að eitt hús við götuna (Lagarás 4) fái hækkun, en ekki önnur.
2. Gerð er athugasemd við að ekki hafi verið sýnt fram á að lóðin leyfi þann bílastæðafjölda sem þarf.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti þann 23.07.2008 deiliskipulag fyrir Lagarás 2-12, Egilsstöðum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Þar sem skipulags- og mannvirkjanefnd telur ekki tilefni til þess að breyta fyrru samþykkt bæjarráðs, fellst bæjarstjórn ekki á framkomnar athugasemdir og staðfestir fyrri afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.16.Eyvindará 2, aðalskipulagsbreyting

Málsnúmer 201301254

Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs, ásamt rökstuðningi, samkvæmt 36.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Breytingin felst í því, að skilmáli fyrir verslunar-og þjónustusvæði að Eyvindará II merkt V26, sem hljóðar svo:
V26, Eyvindará II: Ferðaþjónusta með gistingu í smáhýsum. Hljóði þannig eftir breytingu:
V26, Eyvindará II: Ferðaþjónusta með gistingu.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn óverulega breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028, eins og að ofan greinir. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að auglýsa breytinguna og senda hana Skipulagsstofnun til meðferðar samkvæmt 36. gr. skipulagslaga..

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.17.Eyvindará 2,umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201210040

Erindi dags. 05.10.2012 þar sem Björn Sveinsson kt.160265-4189, f.h. Ófeigs Pálssonar kt.080850-2049, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhúsið að Eyvindará 2.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn erindi umsækjanda og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afgreiða málið.

Samþykkt með handauppréttingu með 8 atkvæðum en 1 var fjarverandi (SB)

3.18.Kröflulína III, aðalskipulagsbreyting

Málsnúmer 201301260

Lögð er fram lýsing á fyrirhugaðri breytingu á aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna Kröflulínu III. Áformað er að breyta aðalskipulaginu á þann veg, að fyrirhugaðri Kröflulínu III er bætt við skipulagið við hliðina á Kröflulínu II, sem þegar hefur verið byggð.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn framlagða lýsingu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að leita umsagnar Skipulagsstofnunar og umsagnaraðila og kynna fyrir almenningi samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt með handauppréttingu með 8 atkvæðum, en 1 var fjarverandi (SHR)

3.19.Svæði fyrir hreystibraut við Egilsstaðaskóla

Málsnúmer 201211125

Erindi dags. 27.11.2012 þar sem Aðalsteinn Þórhallsson kt.301068-2989, fyrir hönd Foreldrafélags Egilsstaðaskóla, óskar eftir svæði til afnota, á eða í allra næsta nágrenni við skólalóðina. Fyrir lá erindi dags. 08.01.2013 þar sem foreldrafélagið leggur fram hugmyndir að svæðum fyrir hreystibraut.
Málið var áður á dagskrá skipulags- og mannvirkjanefndar 12.12.2012.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn svæði nr. 3 á meðfylgjandi teikningu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.20.Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar

Málsnúmer 201301197

Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson óskar eftir umsögn sveitarfélagsins um lýsingu verkefnisins og matslýsingu. Lýsinguna og matslýsinguna er hægt að nálgast á heimasíðu Sveitarfélagsins Hornafjörður.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar gerir bæjarstjórn ekki athugasemd við lýsinguna né matslýsinguna. Bæjarstjórn fagnar öllum áformum, sem stuðla að styttingu þjóðvegar 1.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.21.Þuríðarstaðir, umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir brúargerð

Málsnúmer 201302040

Í vinnslu.

3.22.Umsókn um byggingarleyfi, hjúkrunarheimili

Málsnúmer 201302041

Erindi dags. 08.02.2013 þar sem Sveitarfélagið Fljótsdalshérað sækir um byggingarleyfi fyrir byggingu hjúkrunarheimilis að Blómvangi 1, Egilsstöðum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn að skipulags- og byggingarfulltrúa verði heimilað að gefa út byggingarleyfi fyrir hjúkrunarheimili að Blómvangi 1, Egilsstöðum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.23.Iðavellir lóðamál

Málsnúmer 201301021

Fyrir liggja gögn um stöðu lóðamála að Iðavöllum, Fljótsdalshéraði.

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn að gerður verði leigusamningur við fulltrúa ríkisins um lóðina og felur bæjarstjóra að láta vinna drög að leigusamningi og leggja þau síðan fyrir bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

3.24.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201302068

Erindi dags. 08.02.2013 þar sem Þráinn Lárusson, fyrir hönd Gráa hundsins ehf. kt.540605-1490, sækir um byggingarleyfi fyrir sólskála við Miðvang 2-4, Egilsstöðum.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn að fela skipulags- og byggingarfulltrúa að afgreiða málið þegar samþykki eigenda Miðvangi 2-4, og önnur tilskilin gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 181

Málsnúmer 1302005

Fundargerðin staðfest.

4.1.Beiðni um hálfsdags lokun leikskóla vegna námskeiðs starfsfólks

Málsnúmer 201302059

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu fræðslunefndar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Félagsmálanefnd - 113

Málsnúmer 1302007

Til máls tók: Björn Ingimarsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókun.

Fundargerðin staðfest.

5.1.Barnaverndarmál

Málsnúmer 200805112

Afgreitt af félagsmálanefnd.

5.2.Vinnum saman meira gaman

Málsnúmer 201302104

Lagt fram til kynningar.

5.3.Framkvæmdaáætlun í barnavernd 2013

Málsnúmer 201302089

Afgreitt af félagsmálanefnd.

5.4.Ársyfirlit færni og heilsumatsnefnd heilbrigðisumdæmis Austurlands

Málsnúmer 201302096

Lagt fram til kynningar.

5.5.Gjaldskrá heimaþjónustu 2013

Málsnúmer 201302102

Í vinnslu.

5.6.Uppreiknuð tekju- og eignamörk vegna lánveitingar til leiguíbúða 2013

Málsnúmer 201302097

Lagt fram til kynningar.

5.7.Reglur um sérstakar húsaleigubætur 2013

Málsnúmer 201302088

Drög að breyttum reglum félagsmálanefndar um sérstakar húsaleigubætur voru kynntar í félagsmálanefnd.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu félagsmálanefndar samþykkir bæjarstjórn reglurnar með þeim breytingum sem þar koma fram.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.8.Breytingar á reglugerð um húsaleigubætur

Málsnúmer 201302093

Lagt fram til kynningar.

5.9.Könnun á greiðslu húsaleigubóta 2012

Málsnúmer 201302118

Lagt fram til kynningar.

5.10.Starfsáætlun Félagsþjónustunnar 2013

Málsnúmer 201302114

Afgreitt af félagsmálanefnd.

6.Menningar- og íþróttanefnd Fljótsdalshéraðs - 44

Málsnúmer 1302003

Til máls tók: Páll Sigvaldason, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Einnig ræddi hann lið 6.7.

Fundargerðin staðfest.

6.1.Bjartur 2013 - Rathlaup í Jökuldalsheiði. Kynning og ósk um stuðning

Málsnúmer 201302019

Í vinnslu.

6.2.List án landamæra, umsókn um styrk

Málsnúmer 201302028

Fyrir liggur bréf, dagsett 6. febrúar 2013, með beiðni um styrk til verkefnisins List án landamæra.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu menningar- og íþróttanefndar samþykkir bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 90.000 sem tekið verði af lið 05.89.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.3.Fundargerð vallaráðs 16. janúar 2013

Málsnúmer 201301220

Í vinnslu.

6.4.Hvatning til sveitarfélaga frá UMFÍ

Málsnúmer 201301235

Fyrir liggur til kynningar bréf frá Ungmennafélagi Íslands, dagsett 24. janúar 2013, þar sem sveitarfélögum er þakkað fyrir að styðja við bakið á keppnisliðum ungmennafélaga með því að sjá þeim fyrir gistingu í sínu húsnæði. Um leið eru önnur sveitarfélög, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, hvött til að leggja sitt af mörkum svo keppnislið fái gistingu á viðráðanlegu verði.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu menningar- og íþróttanefnd felur bæjarstjórn starfsmanni nefndarinnar að kanna hvernig fyrirkomulagi er háttað varðandi gistinu íþróttahópa hjá stofnunum sveitarfélagsins. Jafnframt er tekið undir hvatningu UMFÍ til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að leggja líka sitt af mörkum í þessum efnum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.5.Fundargerð samstarfsnefndar um skíðasvæðið í Stafdal frá 1.2. 2013

Málsnúmer 201302024

Lagt fram til kynningar.

6.6.Starfsemi félagsheimilanna

Málsnúmer 201201262

Í vinnslu.

6.7.Þjónustukönnun október-nóvember 2012

Málsnúmer 201212026

Vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2014.

6.8.Stjórnarfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 06.02.2013

Málsnúmer 201302042

Lagt fram til kynningar.

6.9.Stjórnarfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 30.janúar 2013

Málsnúmer 201302052

Lagt fram til kynningar.

6.10.Stjórnarfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 23.janúar 2013

Málsnúmer 201302051

Lagt fram til kynningar.

7.Geðlæknis- og sálfræðiþjónusta fyrir börn á FSA

Málsnúmer 201302122

Eftirfarandi tillaga lögð fram.

Bæjarstjórn tekur undir bréf Skólaskrifstofu Austurlands til forstjóra FSA, Velferðarráðuneytisins, þingmanna Norðaustur kjördæmis.og fleiri aðila, og hvetur heilbrigðisyfirvöld til að forða því að bráðnauðsynleg þjónusta barna- og unglingageðdeildar FSA skerðist, heldur verði leitað leiða til að efla hana enn frekar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Aðalfundur Hitaveitu Egilsstaða og Fella 2013

Málsnúmer 201302124

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 15. febrúar, með fundarboði á aðalfund Hitaveitu Egilsstaða og Fella ehf. sem haldinn verður á Hótel Héraði þriðjudaginn 26. febrúar 2013.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarstjórn samþykkir að Gunnar Jónsson fari með umboð Fljótsdalshéraðs á fundinum til að leggja fram tillögur. Bæjarfulltrúum er falið að fara með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum. Atkvæði skiptist jafnt milli þeirra fulltrúa sem á fundinum verða. Til vara verði varabæjarfulltrúar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fundi slitið - kl. 18:45.