Frumvörp til laga um búfjárhald og velferð dýra /til umsagnar

Málsnúmer 201302032

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 225. fundur - 13.02.2013

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 6.febrúar 2012 með tillögum Sambandsins vegna breytinga á frumvörpum til laga um búfjárhald og dýravelferð.

Bæjarráð gerir alvarlegar athugasemdir við að einstök sveitarfélög hafi ekki fengið umrædd frumvörp til umsagnar með eðlilegum fyrirvara, en 8. febrúar er bréfið vegna beiðni um athugasemd við frumvarpið dagsett og umsögn skal skila í dag 13. febrúar.