Eignarhaldsfélagið Fasteign, tilkynning um breytingu á félagaformi

Málsnúmer 201302017

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 225. fundur - 13.02.2013

Lagt fram til kynningar bréf, dagsett 1.febrúar 2013, frá Bjarna Aðalgeirssyni hdl. f.h. Eignarhaldsfélagsins Fasteignar þar sem tilkynnt er um breytingu á félagaformi.

Á hluthafafundi í félaginu 24. janúar sl. var samþykkt að breyta félaginu í einkahlutafélag í samræmi við 132. gr. hlutafjárlaga nr. 2/1995.