Bæjarráð Fljótsdalshéraðs
1.Samanburður á þjónustu sveitarfélaga
2.Frumvarp til laga um félagsþjónustu sveitarfélaga
3.Frumvarp til laga um þjónustu við fatlað fólk með miklar stuðningsþarfir
4.Frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga(fasteignasjóður)
5.Frumvarp til laga um kosningar til sveitarstjórna (kosningaaladur)
6.Umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga - Þorrablót Þinghármanna
7.Umsókn um tækifærisleyfi/Þorrablót Egilsstaða 2018
8.Umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitingar - Þorrablót Fellamanna.
9.Bæjarstjórnarbekkurinn 16.12.2017
10.Umsókn um leigu á atvinnuhúsnæði
11.Fasteignamat á vatnsréttindum í Lagarfossvirkjun og Grímsárvirkjun
12.Innkaupareglur Fljótsdalshéraðs
13.Miðvangur 31/nýting svæðis
15.Fundargerð upplýsingarfundar Hitaveitu Egilsstaða og Fella
16.Ráðstefna um norrænt samstarf í menningarmálum
17.Háskólasetur Austfjarða
18.Fundargerð 855.fundar Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
19.Fundargerð 4. fundar stjórnar SSA, 11.des. 2017
20.Fundargerð 233. fundar stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella
21.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 63
Málsnúmer 1712003F
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Skýrslan lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Sjá bókun undir lið 4.5.
-
Bókun fundar
Í bókun ungmennaráðs frá því í janúar 2017 fagnar ungmennaráð því að Fljótsdalshérað ætli að ráðast í að verða plastpokalaust sveitarfélag. Jafnframt óskaði ráðið eftir aðkomu að málinu. Ungmennaráð óskar nú eftir upplýsingum um það hvar málið er statt og ítrekar jafnframt ósk um aðkomu að því.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð beinir því til umhverfisfulltrúi að hann upplýsi ungmennaráð um stöðu verkefnisins og tryggi aðkomu ráðsins að málinu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fram kemur í fundargerð ungmennaráðs að Ungmennaþing 2018 verður haldið um miðjan apríl 2018. Nákvæm dagsetning liggur þó ekki fyrir, en þingið mun beina sjónum að heilsueflandi samfélagi í sinni víðustu mynd.
Bæjarráð fagnar þessu framtaki ungmennaráðs Fljótsdalshéraðs, en málið er að öðru leyti í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
22.Félagsmálanefnd - 160
Málsnúmer 1711022F
-
Bókun fundar
Afgreiðsla félagsmálanefndar staðfest.
-
-
Bókun fundar
Með tilkomu nýrrar bifreiðar fyrir ferðaþjónustu fatlaðra á vegum Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, stendur eldri bifreið sveitarfélagsins sem nýtt var fyrir ferðaþjónustuna ónotuð. Nokkrir aðilar hafa sett sig í samband við bæjaryfirvöld og óskað eftir kaupum á bílnum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð samþykkir að bifreiðin verði seld og felur bæjarstjóra að láta auglýsa hana til sölu.
Varðandi hugmyndir félagsmálanefndar um nýtt vinnulag í barnavernd, óskar bæjarráð eftir því að fá upplýsingar um kostnað við innleiðinguna.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
23.Íþrótta- og tómstundanefnd - 37
Málsnúmer 1711026F
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd og fagnar því að sundlaugin á Egilsstöðum kemur ágætlega út hvað varðar aðgengi fatlaðra. Skýrslu Sjálfsbjargar að öðru leyti beint til forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum til yfirferðar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Bæjarráð samþykkir að vísa reglunum til afgreiðslu á næsta fundi bæjarstjórnar.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu íþrótta- og tómstundanefndar samþykkir bæjarráð fyrirliggjandi samstarfssamning á milli Íþróttafélagsins Hattar og Fljótsdalshéraðs.
Starfsmanni íþrótta- og tómstundanefndar og bæjarstjóra falið að klára viðræður við Íþróttafélagið Hött og undirritun samnings.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
24.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 82
Málsnúmer 1711021F
-
Bókun fundar
Vegna áforma um byggingu á bílskúr að Brávöllum 14 hefur grenndarkynning farið fram. Engar athugasemdir bárust.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð umrædd áform um byggingu bílskúrs að Brávöllum 14.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur niðurstaða grenndarkynningar vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Ylstrandar. Athugasemd barst frá Vegagerðinni, vegna vegtengingar. Minjastofnun vekur athygli á að ekki hafi verið hægt að skoða umrætt svæði vegna snjóa.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð að tillagan verði samþykkt, þegar tekið hefur verið tillit til athugasemda Vegagerðarinnar og syðri vegtengingin verið felld út. Vakin er athygli á að ekki er heimilt að hefja framkvæmdir fyrr en umsögn Minjastofnunar liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Tilkynning um skil á lóð Bjarkarseli 10.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að setja lóðina á lista yfir lausar lóðir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Tilkynning um skil á lóð Bjarkarseli 12.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að setja lóðina á lista yfir lausar lóðir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Ósk frá Forsætisráðuneytinu um stofnun lóðar við Snæfell. Lóðin er í samræmi við gildandi deiliskipulag.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að stofna lóðina í Þjóðskrá.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Erindi frá Pacta lögmenn, Bjarni G. Björgvinsson hrl. fyrir hönd Þórarins Hrafnkelssonar, þar sem krafist er að lóð með landnr. 221105 verði afmáð úr fasteignaskrá.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið fyrir næsta fund bæjarráðs.
-
Bókun fundar
Erindi frá Sigurði Jónssyni varðandi snjómokstur á vegi 937 Skriðdalsvegi vestan Grímsár. Óskað er eftir úrbótum á snjómokstri.
Bæjarráð þakkar bréfritara erindið en vísar til bókunar
umhverfis- og framkvæmdanefndar og bendir á að vegurinn fær vetrarþjónustu í samræmi við ákvörðun Vegagerðarinnar um þjónustustig og að annað þjónustustig er á veginum austan Grímsár.
Í tilefni af erindinu felur bæjarráð bæjarstjóra að láta taka saman upplýsingar um vetrarþjónustu á vegum innan sveitarfélagsins og leggja þær fyrir bæjarráð.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Umsókn frá Alona Perepelytsia um lóðina Hamrar 4.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkri bæjarráð að úthluta lóðinni Hamrar 4 til umsækjanda. Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að uppfæra lista yfir lausar lóðir í sveitafélaginu og birta á heimasíðu sveitafélagsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Umsókn frá Vilborgu Vilhjálmsdóttur um stofnun 6 lóða úr Eyvindará lóð 11.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarráð erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að stofna lóðirnar í þjóðskrá.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
25.Atvinnu- og menningarnefnd - 60
Málsnúmer 1711024F
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fyrir liggja drög að endurskoðuðum samningi við Þjónustusamfélagið á Héraði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögur atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarráð fyrirliggjandi samningsdrög.
-
Bókun fundar
Ábendingar atvinnu- og menningarnefndar verða hafðar til hliðsjónar við afgreiðslu málsins og framtíðarnýtingu húsnæðisins.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur bréf frá Snorraverkefninu dagsettur 20. nóvember 2017 þar sem óskað er eftir áframhaldandi stuðningi við verkefnið sem felur m.a. í sér móttöku ungmenna af íslenskum ættum frá Kanada og Bandaríkjunum á næsta ári.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarráð að verkefnið verði styrkt um kr. 75.000. sem tekið verði af lið 0589 á árinu 2018.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Varðandi bókun stjórnar Minjasafnsins um lækkun á fjárframlagi frá Fljótsdalshéraði til safnsins fyrir árið 2018, þá vill bæjarráð árétta að framlag Fljótsdalshéraðs hækkaði úr 19,8 milljónum árið 2017 í 22,3 milljónir árið 2018, eða um 12.62%.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 12:30.
Fljótsdalshérað kemur almennt nokkuð vel út úr könnuninni og skorar sérstaklega hátt varðandi þjónustu við fatlaða og eldri borgara.
Ánægja íbúa með umhverfismál, grunnskóla og sorphirðu er einnig í hærra lagi hjá Fljótsdalshéraði þegar sveitarfélög eru borin saman.
Ásamt samgöngumálum er íþróttaaðstaða sá þáttur sem íbúum finnst að þurfi helst að bæta. Þar á eftir koma leikskólamál og skipulagsmál.