Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

230. fundur 10. apríl 2013 kl. 16:00 - 21:15 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Stefán Bogi Sveinsson varaformaður
  • Sigrún Blöndal aðalmaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Katla Steinsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Fjármál 2013

Málsnúmer 201301002Vakta málsnúmer

Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið og kynnti ýmsar samantektir sínar úr bókhaldi sveitarfélagsins.

Björn Ingimarsson bæjarstjóri sagði frá fundi með forsvarsmönnum Sláturfélags Austurlands.

Skrifstofustjóri kynnti frumdrög fjárhagsáætlunar 2014 fyrir málaflokk 21. Samþykkt að vísa þeim gögnum til gerðar rammaáætlunar fyrir árið 2014.

2.Ársreikningur 2012

Málsnúmer 201303154Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir til síðari umræðu í bæjarráði ársreikningur Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2012, ásamt endurskoðunarskýrslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu að vísa ársreikningum og endurskoðunarskýrslunni til síðari umræðu í bæjarstjórn.

3.Atvinnumálanefnd Fljótsdalshéraðs - 89

Málsnúmer 1304002Vakta málsnúmer

Fundargerðin staðfest.

3.1.Tjaldsvæðið á Egilsstöðum, framkvæmdir og þjónusta á tjaldsvæðinu

Málsnúmer 201301022Vakta málsnúmer

Afgreiðsla nefndarinnar staðfest.

3.2.Aðalfundur Gróðrarstöðvar Barra ehf.v.2012

Málsnúmer 201303158Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir með handauppréttingu að tilnefna Björn Ingimarsson sem aðalmann í stjórn Gróðrarstöðvar Barra ehf. og Gunnlaug Guðjónsson sem varafulltrúa. Tilnefining þessi er sameiginleg með Fljótsdalshreppi.

Jafnframt samþykkir bæjarráð að Björn Ingimarsson fari með umboð og atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundi Gróðrarstöðvarinnar sem boðaður er þann 16. apríl nk.

3.3.Atvinnuþróunarsjóður Austurlands 2013

Málsnúmer 201303092Vakta málsnúmer

Bæjarráð tekur undir þær tillögur sem fram komu í gögnum og leggur til að unnið verði samkvæmt þeim.

Bæjarráð gerir þó fyrirvara um það hlutfall sem gert er ráð fyrir að Austurbrú geti ráðstafað til eigin verkefna og telur mikilvægt að sveitarfélögin komist að samkomulagi um þennan þátt.

3.4.Sóknaráætlun Austurlands 2013

Málsnúmer 201303073Vakta málsnúmer

Bæjarráð tekur undir með atvinnumálanefnd og fagnar því að áhersla er lögð á markaðssetningu svæðisins, m.a. varðandi Egilsstaðaflugvöll.

Hins vegar saknar bæjarráð þess að skógræktar er ekki getið sem eins af sóknarfærum svæðisins.

3.5.Atvinnumálanefnd, uppgjör 2012

Málsnúmer 201303100Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

3.6.Fjárhagsáætlun 2014

Málsnúmer 201302034Vakta málsnúmer

Tillögum atvinnumálanefndar vísað til vinnu við gerð rammaáætlunar.

3.7.Fyrirkomulag kynningar- og auglýsingamála 2013

Málsnúmer 201304011Vakta málsnúmer

Bæjarráð staðfestir tillögu atvinnumálanefndar um að leggja kr. 400.000 í kynningarbækling um Héraðið. Fjármagnið verði tekið af lið 13-63.

Jafnframt að starfsmanni nefndarinnar verði falið að undirbúa gerð kynningarvefs; visitegilsstadir.is í samræmi við fyrirliggjandi hugmyndir. Fjármagn til verkefnisins, allt að kr. 1.200.000 verði tekið af lið 13-63.

3.8.Atvinnumálasjóður 2013

Málsnúmer 201211032Vakta málsnúmer

Í vinnslu.

4.Endurmenntunarsjóður Fljótsdalshéraðs - 13

Málsnúmer 1303004Vakta málsnúmer

Fundargerðin staðfest.

4.1.Umsóknir í endurmenntunarsjóð 2013

Málsnúmer 201303018Vakta málsnúmer

Afgreiðsla stjórnar endurmenntunarsjóðs staðfest.

5.Fundargerð 147. fundar Hitaveitu Egilsstaða og Fella

Málsnúmer 201304016Vakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

6.Fundur stýrihóps um Sjálfbærniverkefni á Austurlandi, 21.mars 2012

Málsnúmer 201304008Vakta málsnúmer

Bæjarráð samþykkir samhljóða með handauppréttingu að gera breytingu á fulltrúa sveitarfélagsins í stjórn verkefninins á þann veg að Freyr Ævarsson verkefnisstjóri umhverfismála taki sæti Björns Ingimarssonar þar.

Fundargerðin lögð fram til kynningar að öðru leyti.

7.Fundargerðir SO 2013

Málsnúmer 201301244Vakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8.Fundur Byggingarnefndar um hjúkrunarheimili 10.apríl 2013

Málsnúmer 201304018Vakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

9.Aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands 2013

Málsnúmer 201304001Vakta málsnúmer

Aðalfundur fulltrúaráðs Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Ísl. verður haldinn þann 19. apríl nk.

Bæjarráð samþykkir að fela Birni Ingimarssyni að fara með umboð og atkvæði Fljótsdalshéraðs á fundinum.

10.Aðalfundur Dvalarheimilis aldraðra 2013

Málsnúmer 201303020Vakta málsnúmer

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Deiliskipulag flugvallarsvæði

Málsnúmer 201012090Vakta málsnúmer

Lagðir fram punktar sem fram komu á fundi með bæjarstjóra, skipulags- og byggingarfulltrúa og fulltrúum áhugahóps um göngustíg umhverfis Egilsstaðaflugvöll, sem haldinn var 11. mars sl. Einnig lögð fram greinargerð með athugasemdum við deiliskipulag fyrir flugvallarsvæðið á Egilsstaðanesi, dags. 5. júní 2012.

Gunnar Jónsson vék af fundi við umræðu og afgreiðslu þessa liðar.

Minnisblaðið lagt fram til kynningar. Málefni þau sem tæpt er á í því eru til afgreiðslu í skipulags- og mannvirkjanefnd og er minnisblaðinu vísað þangað til að hafa til hliðsjónar við vinnslu málsins.

12.Skólaakstur - skipulag o.fl.

Málsnúmer 201211104Vakta málsnúmer

Málinu frestað til næsta fundar.

13.Hrjótur Hjaltastaðaþinghá

Málsnúmer 201302140Vakta málsnúmer

Erindinu var vísað frá 228.fundi bæjarráðs, til frekari skoðunar.

Bæjarráð telur að í stað þess að skoða áfram möguleika í tengslum við Hrjót, verði frekar unnið meira á grundvelli hugmynda sem áður hafa komið fram um jörðina Gröf.

Bæjarráð samþykkir samhljóða með handauppréttingu að leggja til að skipaður veriði þriggja manna hópur til að kanna valkosti um að nýta jörðina Gröf að hluta sem friðland, að hluta sem skógræktarland og einnig til almennrar útivistar. Lagt er til að hópurinn verði skipaður einum fulltrúa bæjarráðs, einum fulltrúa frá umhverfis- og héraðsnefnd og einum fulltrúa frá bréfriturum. Óskað er eftir því að framangreindir aðilar taki afstöðu til hugmyndar bæjarráðs.

14.Málefni Safnahúss

Málsnúmer 201211102Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Vopnafjarðarhreppi, en þar lýsir sveitarstjórn sig reiðubúna til að endurskoða resktur í safnahúsinu, enda verði þar horft bæði til fjárhagslegra- og faglegra þátta.

Þá hafa öll sveitarfélögin svarað fyrirspurn Fljótsdalshéraðs og öll með hliðstæðum hætti.

Bæjarráð óskar í framhaldi þessa eftir fundi fulltrúa sveitarfélagsins með fulltrúum stjórna allra safnanna í safnahúsinu til að ræða framhald málsins.

15.Fyrirspurn um niðurfellingu gatnagerðargjalda

Málsnúmer 201304010Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá 2. apríl 2013, með fyrirspurn um niðurfellingu gatnagerðargjalda.

Bæjarráð hafnar erindinu meðal annars með vísan til jafnræðissjónarmiða.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tímabundin heimild fjármálastjóra til frestunar innheimtu hluta gatnagerðargjalda, samkv. samþykkt bæjarstjórnar frá 19. janúar 2011 sem gillti til 31.12.2012, verði framlengd og gildi til 31.12.2013.

16.Greiðslur til sveitarfélaga vegna alþingiskosninga 2013

Málsnúmer 201304014Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Innanríkisráðuneytinu, dagsett 2. apríl 2013 með upplýsingum um greiðslur til sveitarfélaga vegna alþingiskosninga 2013.

17.Fræðslumál og íbúaþróun

Málsnúmer 201304019Vakta málsnúmer

Ræddar horfur í íbúaþróun í dreifbýli og þéttbýli og ýmis mál því tengd.

18.Kjörskrá Alþingiskosninga 27.apríl 2013

Málsnúmer 201304028Vakta málsnúmer

Lögð fram til staðfestingar kjörskrá Fljótsdalshéraðs fyrir alþingiskosningarnar þann 27. apríl nk.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Bæjarráð hefur látið taka saman drög að kjörskrá, fyrir komandi alþingiskosningar á grundvelli kjörskrárstofns frá Þjóðskrá Íslands. Bæjarráð staðfestir drögin fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að kjörskrá verði samþykkt og bæjarstjóra falið að undirrita hana og leggja fram á fundi bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir að drögin liggi frammi til kynningar frá og með morgundeginum.

Jafnframt verði bæjarráði veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma upp fram á kjördag vegna Alþingiskosninga 27. apríl nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.

Fundi slitið - kl. 21:15.