Umhverfis- og framkvæmdanefnd

73. fundur 12. júlí 2017 kl. 17:00 - 20:15 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Árni Kristinsson formaður
  • Guðrún Ragna Einarsdóttir aðalmaður
  • Ágústa Björnsdóttir varaformaður
  • Ester Kjartansdóttir aðalmaður
  • Benedikt Hlíðar Stefánsson varamaður
  • Freyr Ævarsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Freyr Ævarsson verkefnastjóri umhverfismála
Sigurður Jónsson starfandi skipulags- og byggingarfulltrúi sat fundinn.

Í upphafi fundar óskaði formaður eftir að bæta þremur atriðum við dagskrána: Deiliskipulag Möðrudal Fljótsdalshéraði, Umhverfisviðurkenningar 2017 og Kerfisáætlun Landsnets 2017-2026 og verða þau nr. 18, 19 og 20.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1.Samstarfsverkefni um sjálfbæra þróun í bæjum og borgum á Norðurlöndum

Málsnúmer 201704054

Lagt fram minnisblað varðandi norrænt samstarfsverkefni um sjálfbæra þróun þéttbýlissvæða.
Óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins um þátttöku og hversu margir fulltrúar eigi að sækja upphafssmiðju verkefnisins.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að Fljótsdalshérað taki þátt í verkefni um sjálfbæra þróun í bæjum og borgun á Norðurlöndum. Nefndin leggur til að tveimur aðilum frá sveitarfélaginu verði gert kleift að sækja upphafssmiðju verkefnisins.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Tjarnarbrautarreitur - breyting á deiliskipulagi, íþróttahús

Málsnúmer 201703038

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Tjarnarbrautarreits ásamt athugasemdum sem bárust við grendarkynninguna.
Málið var áður á dagskrá 71. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 14.6. sl. Fyrir liggur skjal unnið af skipulags- og byggingarfulltrúa þar sem athugasemdir eru tilgreindar og þeim svarað.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd frestar afgreiðslu málsins og kallar eftir nákvæmum upplýsingum um húsgerð og staðsetningu á byggingarreitnum. Skipulagstillagan verður endurskoðuð og send til kynningar þegar þær upplýsingar liggja fyrir.

Skipulags- og byggingarfulltrúa falið að svara innkomnum athugasemdum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Ágústa Björnsdóttir vék af fundi undir afgreiðslu þessa liðs.

3.Bjarkasel 16 færsla á bílskúr

Málsnúmer 201508079

Lagt fram bréf frá eigendum Bjarkasels 16.
Málið var áður á dagskrá 71. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar þann 14.6. sl. Fyrir liggja innmælingar á húsum nr. 14, 16 og 18 við Bjarkasel unnar af Verkís.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að niðurstaðan verði kynnt húseigendum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

4.Eyjólfsstaðaskógur 24,umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 201111062

Lögð fram umsókn fyrir hönd lóðarhafa að Eyjólfsstaðaskógi 24, um breytingu á byggingarleyfi.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar erindinu þar sem teikningar standast ekki deiliskipulag og rotþró er utan byggingarreits.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

5.Verkefnisráð-samráðsvettvangur hagsmunaaðila vegna Kröflulínu 3.

Málsnúmer 201707013

Erindi frá Landsneti þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið tilnefni fulltrúa í verkefnisráð - samráðsvettvang hagsmunaaðila vegna Kröflulínu 3.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd tilnefnir Árna Kristinsson í ráðið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

6.Samningur um afnotarétt bílastæða við Kaupvang 6

Málsnúmer 201707024

Lögð eru fram drög að samningi milli Samkaupa og Fljótsdalshéraðs um afnotarétt af landi undir bílastæði austan Kaupvangs 2.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir framlögð drög að samningi milli Samkaupa og Fljótsdalshéraðs, um afnotarétt, malbikun og frágang bílastæða á bílastæðalóð sem liggur að Kaupvangi 6 og að gildistími samningsins verði 15 ár. Nefndin fer fram á að gerðar verði viðeigandi breytingar á texta.

Jafnframt staðfestir nefndin að lóðin Kaupvangur 2 er eign Fljótsdalshéraðs og gerir ekki athugasemdir við samning milli Samkaupa og húseigenda að Kaupvangi 2.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu

7.Kæra vegna skemmda við Lagarbraut

Málsnúmer 201707008

Lagt fram bréf frá Halldóri Vilhjálmssyni varðandi ætlaðar skemmdir á lóðum hans.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar skaðabótakröfunni en felur starfsmönnum þjónustumiðstöðvar að lagfæra þær skemmdir sem sannanlega hafa orðið vegna framkvæmda við götuna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

8.Beiðni um lokanir og merkingar vegna unglingalandsmóts

Málsnúmer 201707018

Lagt fram bréf frá Bylgju Borgþórsdóttur varðandi lokun gatna og merkingar í tengslum við Unglingalandsmót UMFÍ.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið, en bendir á að merkingar á þjóðvegi við Fellavöll þarf að vinna í samráði við Vegagerðina.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu

9.Göngustígur, Einbúablá-Árskógar

Málsnúmer 201707019

Lagt fram bréf frá eigendum húsa númer 4 og 6 við Einbúablá varðandi göngustíg milli lóðanna og yfir í Árskóga.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur forstöðumanni þjónustumiðstöðvar málið til úrlausnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

10.Tilkynning um niðurfellingu vega af vegaskrá 2017

Málsnúmer 201706103

Lagt fram bréf frá Vegagerðinni varðandi niðurfellingu Víðilækjarvegar af vegaskrá.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd bendir á að skv. Þjóðskrá er íbúi með lögheimili á Víðilæk. Auk þess er atvinnustarfsemi (skógrækt) á jörðinni.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

11.Plastlaus september 2017

Málsnúmer 201706110

Lagt fram bréf frá Dóru Magnúsdóttur verkefnisstjóra Plastlauss september þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi við verkefnið.

Sveitarfélagið hefur ákveðið að í tilefni 70 ára afmælis Egilsstaðakauptúns verði öllum heimilum í sveitarfélaginu færður að gjöf margnota innkaupapoki.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd lítur á það sem stuðning sinn við verkefnið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

12.Merkingar við blokkir í Hamragerði

Málsnúmer 201707022

Lagt fram bréf frá Ingigerði Benediltsdóttur fyrir hönd stjórnar húsfélagsins Hamragerði 7 varðandi merkingar við innkeyrslur að fjölbýlishúsunum við Hamragerði.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar erindinu en bendir á að skýrara sé að hvert hús sé merkt.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

13.Uppsetning skilta vegna Skemmunnar

Málsnúmer 201707023

Lagt fram bréf frá Önnu Maríu Arnfinnsdóttur fyrir hönd Skemmukvenna þar sem óskað er eftir leyfi til að setja upp skilti sem vekja athygli á starfsemi þeirra.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar erindinu en gefur leyfi fyrir skiltum framan við húsið og á gatnamótum Fagradalsbrautar og Kaupvangs. Það skilti skal vera í samræmi við önnur skilti sem þar eru.

Nefndin bendir á möguleika á að setja merkingar á vegvísakilti í þéttbýlinu í samráði við sveitarfélagið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

14.Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2016

Málsnúmer 201706020

Lögð fram Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2016.

Lagt fram til kynningar

15.Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2016

Málsnúmer 201706046

Lögð fram Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2016.

Lagt fram til kynningar.

16.Fundargerð 82.fundar Landbótasjóðs Norður héraðs.

Málsnúmer 201707001

Lögð fram fundargerð 82. fundar Landbótasjóðs Norður héraðs.

Lagt fram til kynningar.

17.Vatna- og sundfuglar á Jökulsá á Dal og endur á Lagarfljóti og á vötnum á Fljótsdalsheiði árið 2016

Málsnúmer 201706022

Lögð fram skýrslan Vatna- og sundfuglar á Jökulsá á Dal og endur á Lagarfljóti og á vötnum á Fljótsdalsheiði árið 2016.

Lagt fram til kynningar

18.Deiliskipulag Möðrudal Fljótsdalshéraði

Málsnúmer 201104043

Lagt fram bréf Minjastofnunar Íslands varðandi afgreiðslu á deiliskipulaginu Möðrudalur á Fjöllum.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að vísa erindinu til skipulagsráðgjafa til umfjöllunar. Jafnframt er skipulags- og byggingarfulltrúa falið að afturkalla auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsins úr B-deild Stjórnartíðinda.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

19.Umhverfisviðurkenningar 2017

Málsnúmer 201707036

Lagður er fram tölvupóstur frá Óðni Gunnari Óðinssyni varðandi umhverfisviðurkenningar 2017.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir að fela starfsmanni að leita eftir samstarfi við Garðyrkjufélag Fljótsdalshéraðs um umhverfisviðurkenningar á Ormsteiti.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

20.Kerfisáætlun Landsnets 2017-2026

Málsnúmer 201705019

Fyrir liggur Kerfisáætlun 2017-2026 - Viðbrögð við athugasemdum við matslýsingu.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 20:15.