Lagt fram bréf frá Steindóri Jónssyni og Önnu Þórnýju Jónsdóttur lóðarhöfum lóðar nr 24 í Eyjólfsstaðaskógi, þar sem þau gera athugasemdir við afgreiðslu nefndarinnar á erindi frá þeim. Málið var á dagskrá nefndarinnar þann 12.7.2017.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd bendir á að í gildandi deiliskipulagi fyrir Eyjólfsstaðaskóg svæði D, E og F, unnið af landeiganda, eru ákvæði um að mænishæð megi mest vera 540 cm yfir gólfplötu. Einnig er í deiliskipulaginu kveðið á um að rotþró skuli staðsett innan byggingarreits. Á þeim forsendum hlaut erindið neikvæða afgreiðslu. Því stendur fyrri bókun nefndarinnar óbreytt. Umhverfis- og framkvæmdanefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að koma ábendingum til Skógræktarfélags Austurlands um hvort rétt sé að endurskoða gildandi deiliskipulag þar sem komið verði til móts við óskir bréfritara.
Umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahús, Eyjólfsstaðaskógi 24.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimilað verði að veita byggingarleyfi fyrir sumarhúsi með hliðsjón af 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar erindinu þar sem teikningar standast ekki deiliskipulag og rotþró er utan byggingarreits.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.