Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs
1.Starfsáætlanir nefnda Fljótsdalshéraðs 2017
3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 376
Málsnúmer 1702024F
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
3.2
201701003
Fjármál 2017
Bókun fundar
Bæjarstjóri kynnti uppsagnarbréf frá Vífli Björnssyni skipulags- og byggingarfulltrúa. Starfið hefur þegar verið auglýst.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Vífli eru þökkuð vel unnin störf í þágu sveitafélagsins og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi þegar hann lætur af störfum hér.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Afgreitt undir lið 1 í þessari fundargerð bæjarstjórnar.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla bæjarráðs staðfest.
-
Bókun fundar
Málið er í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lögð fram beiðni um stuðning vegna ráðstefnu félagsins sem haldin verður nú í apríl og til rekstrar félagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn að veita 300.000 kr. styrk til ráðstefnunnar sem tekinn verði af lið 21500. Jafnframt samþykkt að ræða áfram við samtökin um mögulega aðkomu að rekstri þeirra með reglubundnum hætti.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt fram minnisblað frá fundi HSA með sveitarstjórum á Austurlandi 23.02.sl.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og leggur áherslu á að fjárveitingar til Heilbrigðisstofnunnar Austurlands taki mið af fjárþörf stofnunarinnar, svo ekki þurfi að koma til þjónustuskerðingar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í bæjarráði voru ræddar nýjustu upplýsingar um fjárveitingar vegna samgönguáætlunar 2015-2018, sem samþykkt var á nýliðnu hausti.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs telur það óásættanlegt að ekki sé staðið við nýsamþykkta samgönguáætlun.
Þau verkefni sem þar er að finna eru sannanlega engin gæluverkefni heldur bráðnauðsynleg úrbótaverkefni á samgöngukerfi sem komið er að fótum fram.
Augljóst er að fjárveitingar til samgöngumála þurfa að minnsta kosti að vera 1,5% af vergri þjóðarframleiðslu, til að hægt sé að viðhalda og byggja upp samgöngukerfið eins og þörf er á.
Bæjarstjórn krefst þess að þingmenn kjördæmisins gangi þannig til verks að hægt verði að fara í nauðsynlegar og samþykktar samgönguframkvæmdir á Austurlandi á þessu ári og því næsta.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
4.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 377
Málsnúmer 1703006F
4.1
201701003
Fjármál 2017
Bókun fundar
Lagt fram.
-
Bókun fundar
Lagt fram.
-
Bókun fundar
Lagt fram.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn tillögur fræðslunefndar að fjölga stöðugildum um 1,5 við Tjarnaskóg frá og með næsta skólaári. Fjármálastjóra falið að skoða, ásamt fræðslustjóra, fjármögnun stöðugildanna.
Jafnframt samþykkt að mánaðarleg niðurgreiðsla til dagforeldra verði hækkuð um 25%, frá og með sama tíma.
Bæjarstjórn beinir því til fræðslunefndar að halda áfram að skoða dagvistunarmöguleika í sveitarfélaginu með tilliti til þróunar næstu árin.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Vísað til liðar 1 á dagskrá.
-
Bókun fundar
Lagt fram.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að Björn Ingimarsson, bæjarstjóri, fari með umboð og atkvæði Fljótsdalshéraðs á aðalfundi Lánasjóðs sveitarfélaga 2017.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á lögum um verslun með áfengi og tóbak.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með bæjarráði og telur ekki þörf á þeim breytingum sem frumvarpið boðar um verslun með áfengi. Bæjarstjórn telur tíma Alþingis betur varið í umfjöllun um önnur og brýnni málefni.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
5.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 378
6.Atvinnu- og menningarnefnd - 49
Málsnúmer 1703001F
-
Bókun fundar
Í vinnslu
-
Bókun fundar
Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 15. febrúar 2017, frá Þórarni Lárussyni þar sem óskað er eftir málafylgju við hugmyndir um þurrkun og vinnslu á hráefni úr landbúnaði, s.s. heyi, byggi, hálmi og skógvið í húsnæði Haustaks. Á fundi atvinnu- og menningarnefndar undir þessum lið mætti Þórarinn Lárusson.
Málið var áður á dagskrá nefndarinnar 20. febrúar 2017.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með atvinnu- og menningarnefnd og leggur til að starfsmaður nefndarinnar setji sig í samband við eigendur húsnæðisins og kanni grundvöll fyrir því að fyrirhuguð starfsemi geti orðið í húsnæðinu og á hvaða forsendum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Stefán Bogi Sveinsson gerði grein fyrir atkvæði sínu.
-
Bókun fundar
Fyrir liggur bréf dagsett 19. febrúar 2017, frá Tengslaneti austfirskra kvenna, með beiðni um styrk til að halda ráðstefnuna Auður Austurlands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 100.000 sem tekið verði af lið 1389.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Málið er í vinnslu.
-
Bókun fundar
Til kynningar.
7.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 65
Málsnúmer 1703003F
-
Bókun fundar
Staða atvinnulóða í Fellabæ var lögð fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd til umræðu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar felur bæjarstjórn skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram.
Jafnframt er óskað eftir því að fyrir næsta fund nefndarinnar verði lögð fram skýrsla um stöðu lóðamála á iðnaðar- og athafnasvæðum á Egilsstöðum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
7.5
201702095
Rafbílavæðing
Bókun fundar
Lagt er fyrir að nýju erindi Ísorku, en á síðasta fundi Umhverfis- og framkvæmdanefndar var óskað eftir frekari gögnum.
Starfsmaður Ísorku Sigurður Ástgeirsson, tengist með fjarbúnaði á fundartíma til að kynna rekstrar- og upplýsingakerfi Ísorku.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að rafhleðslustöðin sem gefin var af Orkusölunni verði sett upp við íþróttamiðstöðina á Egilsstöðum og að verkið verði unnið í samvinnu við Ísorku samkvæmt fyrirliggjandi gögnum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lögð er fram umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá fyrir umhverfis- og framkvæmdanefnd.
Halldór Sigurðsson sækir um að stofna nýja landeign, Hjartarstaðir 1/lóð2 úr upprunalandinu Hjartarstaðir 1, sem er með landnúmerinu 158095.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Lagt er fyrir erindi frá Forsætisráðuneytinu, Umsókn um stofnun þjóðlendu sbr. 14. gr. laga um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Fasteign sú sem hér óskast stofnuð er þjóðlenda samkvæmt úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 1/2005, dags. 29. maí 2007 og dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 299/2010, dags. 10. febrúar 2011.
Heiti fasteignar: Vesturöræfi ásamt syðri hluta afréttarlandanna Rana og Undir Fellum (sá hluti sem tilheyrir Fljótsdalshéraði).
Landeigandi: Íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998. Kennitala: 540269-6459.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn erindið og felur Skipulags- og byggingarfulltrúa úrlausn þess.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagður er fram listi yfir þrjár lóðir sem lagt er til að verði innkallaðar.
Eftirfarandi tillaga lög fram:
Að tillögu umhverfis- og framvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að eftirtaldar lóðir, sem úthlutað var 2007 og 2008, verði innkallaðar:
- Kaupvangur 8
- Kaupvangur 10
- Kaupvangur 12
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
7.10
201701054
Vinnuskóli 2017
Bókun fundar
Til umræðu er vinnutilhögun og launamál Vinnuskóla 2017.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að laun nemenda vinnuskólans verði hækkuð um 2,5%. Vinnuskólinn er starfræktur fyrir nemendur í 7. til 10. bekk.
Leitast verður við að veita öllum nemendum þá vinnu sem þeir óska eftir.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
8.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 247
9.Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 56
Málsnúmer 1702023F
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Á fundi ungmennaráðs var rætt um nauðsyn þess að boðið sé upp á viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu. Ungmennaráð leggur áherslu á að bæjarstjórn beiti sér fyrir eflingu geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu. Ungmennaráð vekur athygli á verkefni sem unnið er í Menntaskóla Borgarfjarðar í samvinnu við Stéttarfélag Vesturlands.
Eftirfarandi tillaga löð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráði og telur rétt að kanna hvort möguleiki sé á svipuðu samstarfi á Fljótsdalshéraði.
Samþykkt að koma málinu á framfæri við forsvarsmenn Menntaskólans og verkalýðsfélaga á svæðinu. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu úr hlaði.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að vísa erindi ungmennaráðs til íþrótta og tómstundanefndar til skoðunar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Fram kom á fundi bæjarstjórnar og ungmennaráðs að sveitarfélagið stefnir á að verða plastpokalaust frá byrjun árs 2018.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn fagnar áhuga ungmennaráðs á málinu og óskum ráðsins um að fá að koma að verkefninu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
10.Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar/Eiðar, Stóra þinghá
Fundi slitið.