Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir stöðu ársreiknings 2016 sem lagður verður fyrir bæjarráð og bæjarstjórn miðvikudaginn 15. mars 2017.
2.Fundargerð 221. fundar stjórnar Hitaveitu Egilsstaða og Fella
Farið yfir hugmyndir fræðslunefndar um fyrirkomulag til að auka framboð á leikskólaplássum og styrkingu dagmæðrakerfisins fyrir komandi skólaár.
Bæjarráð samþykkir tillögur fræðslunefndar sem fela í sér að fjölga stöðugildum um 1.5 við Tjarnarskóg frá og með næsta skólaári. Fjármálastjóra falið að skoða ásamt fræðslustjóra fjármögnun stöðugildanna. Jafnframt samþykkt að mánaðarleg niðurgreiðsla til dagforeldra verði hækkuð um 25%, frá og með sama tíma.
Bæjarráð beinir því til fræðslunefndar að halda áfram að skoða dagvistunarmöguleika í sveitarfélaginu með tilliti til þróunar næstu árin.
Lagt fram til kynningar bréf frá Forsætisráðuneytinu, þar sem boðað er að ráðuneytið stefni á fund um málefni þjóðlenda að Lyngási 12 Egilsstöðum, 31. maí kl. 9:00.
Tekið fyrir erindi Barra ehf. þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið leggi fram aukið hlutafé í fyrirtækið. Erindið hefur fengið jákvæða afgreiðslu í atvinnu- og menningarnefnd, en nefndin bendir þó á að atvinnumálasjóður hefur ekki fjármagn í fjárhagsáætlun ársins til að leggja fram aukið hlutafé.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til atvinnu- og menningarnefndar til afgreiðslu. Bæjarráð óskar eftir því við atvinnu- og menningarnefnd að nefndin ráðstafi fjármagni Atvinnumálasjóðs til hlutafjáraukningar í Barra ehf. að því gefnu að félaginu takist að tryggja amk jafnmikið fjármagn frá öðrum aðilum og að jafnframt hafi tekist að fjármagna fyrirhuguð verkefni Atvinnumálasjóðs með öðrum hætti.
Fyrir liggur til umsagnar Frumvarp til laga um breytingar á lögum um verslun með áfengi og tóbak.
Bæjarráð telur ekki þörf á þeim breytingum sem frumvarpið boðar um verslun með áfengi. Bæjarráð telur tíma Alþingis betur varið í umfjöllun um önnur og brýnni málefni.