Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

314. fundur 06. maí 2020 kl. 17:00 - 20:00 í fjarfundi
Nefndarmenn
  • Stefán Bogi Sveinsson forseti
  • Anna Alexandersdóttir 1. varaforseti
  • Kristjana Sigurðardóttir 2. varaforseti
  • Gunnar Jónsson bæjarfulltrúi
  • Berglind Harpa Svavarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi
  • Björg Björnsdóttir bæjarfulltrúi
  • Aðalsteinn Ásmundarson bæjarfulltrúi
  • Hannes Karl Hilmarsson bæjarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason bæjarritari
  • Haddur Áslaugsson starfsmaður
Fundargerð ritaði: Stefán Snædal Bragason bæjarritari

1.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 510

Málsnúmer 2004010F

Fundargerðin lögð fram.

2.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 511

Málsnúmer 2004017F

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 2.2 og bar fram fyrirspurn. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 2.2 og Gunnar Jónsson, sem ræddi lið 2.2 og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin lögð fram.

3.Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 512

Málsnúmer 2004020F

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi liði 3.1 og 3.2. og bar fram fyrirspurn. Gunnar Jónsson, sem ræddi lið 3.9. Björn Ingimarsson, sem ræddi lið 3.1 og svaraði fyrirspurn. Hannes Karl Hilmarsson, sem ræddi lið 5.9. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 3.1. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi liði 3.1 og 3.9. Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem ræddi lið 3.7. Björg Björnsdóttir, sem ræddi liði 3.1 og 3.9 og Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 3.1.

Fundargerðin lögð fram.

4.Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 131

Málsnúmer 2004012F

Til máls tóku: Stefán Bogi Sveinsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Hannes Karl Hilmarsson, sem ræddi liði 4.2 og 4.8. Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem ræddi lið 4.2. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 4.2 og bar fram fyrirspurn og Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 4.2 og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 4.2 202004116 Hreinsunarátak 2020
    Bókun fundar Umhverfis- og framkvæmdanefnd fyrirhugar átak í umhverfismálum í sveitarfélaginu. Fyrir liggja drög að Hreinsunarátaki Fljótsdalshéraðs 2020, en megináhersla þess verði fegrun og bætt ásýnd þéttbýlisins á Egilsstöðum og í Fellabæ.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að ráðist í eftirtalda þætti sem koma fram í drögunum.
    Lið 1.a - Götur, gangstígar og gangstéttir á Egilsstöðum og í Fellabæ verði sópaðar tvisvar sinnum frá apríl fram í júní.
    Lið 2.(a-b) - Að íbúar verði hvattir til að nýta úrbótagönguvef Austurbrúar til að koma á framfæri ábendingum um smærri úrbætur, þeim verði safnað saman eftir 20. maí, þær flokkaðar og unnið úr þeim.
    Lið 4.(a-b) - Samfélagsverkefnið „Til prýði fyrir Víði“, en fólk var hvatt til að vera heima við og taka til hendinni í sínu nærumhverfi 2. og 3. maí. Þá skal vefurinn Betra Fljótsdalshérað nýttur til að skipuleggja frekari samfélagsverkefni.
    Lið 6.a - Sveitarfélagið bjóði eigendum bíla og stærri málmhluta sem standa á Egilsstöðum og í Fellabæ, að færa þá til förgunar í maí, eigendum að kostnaðarlausu.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

    Kostnaður við framangreind verkefni verður færður á liðinn Opin svæði.

    Málið er að öðru leyti í vinnslu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
  • Bókun fundar Afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdanefndar staðfest.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
  • Bókun fundar Erindi frá Jökuldal slf. vegna framkvæmda við göngustíga og palla í landi Grundar við Stuðlagil. Fyrir umhverfis- og framkvæmdanefnd lá umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir uppsetningu á göngustígum og pöllum í landi Grundar við Stuðlagil.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar samþykkir bæjarstjórn framkvæmdaleyfið í samræmi við framlögð gögn. Gerður er fyrirvari um að framkvæmdaleyfi verði ekki gefið út fyrr en Skipulagsstofnun hefur staðfest aðalskipulagsbreytingu og athugun Skipulagsstofnunar á deiliskipulagi liggi fyrir.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Fyrirspurn frá Vegagerðinni um samræmi við tillögu að veglínu milli Gilsár og Arnórsstaða á Jökuldal.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og fagnar áformum um vegabætur á veglínu á milli Gilsár og Arnórsstaða, sem var inni á eldri vegaáætlun en komst ekki til framkvæmda í framhaldi af fjármálahruni 2008.

    Bæjarstjórn tekur einnig undir að framkvæmdin sé í samræmi við aðalskipulag Fljótsdalshéraðs 2008 - 2028.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

5.Atvinnu- og menningarnefnd - 103

Málsnúmer 2004009F

Til máls tóku: Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum og Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 5.3.

Fundargerðin lögð fram.

6.Íþrótta- og tómstundanefnd - 62

Málsnúmer 2004007F

Til máls tók: Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Fyrir liggur æskulýðsstefna sveitarfélagsins til umræðu, yfirferðar og eftirfylgni.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd og minnir aðrar nefndir og stofnanir sveitarfélagsins á að hafa æskulýðsstefnu sveitarfélagsins að leiðarljósi í sinni vinnu.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla íþrótta- og tómstundanefndar staðfest.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 6.4 202004143 Heilsuefling
    Bókun fundar Afgreiðsla íþrótta- og tómstundanefndar staðfest.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • 6.6 202002030 Frístund 2020-2021
    Bókun fundar Afgreiðsla íþrótta- og tómstundanefndar staðfest.
  • Bókun fundar Fyrir íþrótta- og tómstundanefnd lá tillaga að húsnæði fyrir Tónlistarskólann á Egilsstöðum og frístundahúsnæði við Egilsstaðaskóla.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn og íþrótta- og tómstundanefnd taka undir með fræðslunefnd og hvetur nýja sveitarstjórn til að setja þessa framkvæmd inn í langtímaáætlun nýs sveitarfélags og vinna að framgangi þess.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
  • 6.8 202004164 Sumarstörf 2020
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 6.9 201910165 Skautasvell
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 6.11 202004166 Hreyfivika 2020
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • 6.12 202004167 Hjólað í vinnuna 2020
    Bókun fundar Fyrir liggja upplýsingar frá ÍSÍ vegna átaksins Hjólað í vinnuna 2020.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með íþrótta- og tómstundanefnd og hvetur stofnanir sveitarfélagsins til að gera þeim sem vilja hjóla í vinnuna það auðveldara, t.d. með því að bæta aðstöðu til að geyma hjól og annan búnað.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

7.Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 288

Málsnúmer 2004011F

Til máls tóku: Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi liði 7.1 7.2 og 7.4. Hannes Karl Hilmarsson, sem ræddi liði 7.1, 7.2 og 7.4. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi liði 7.1 og 7.4. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi liði 7.1 og 7.4. Björg Björnsdóttir, sem ræddi liði 7.1 og 7.4, Björn Ingimarsson, sem ræddi liði 7.1, 7.2 og 7.4 og Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem ræddi liði 7.1, 7.2 og 7.4.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Á fundi fræðslunefndar var rætt um frumtillögu að nýju húsnæði fyrir Tónslistarskólann á Egilsstöðum og frístunda- og félagsmiðstöðvarstarf.
    Mat fulltrúa tónlistarskólans er að um fallega byggingu sé að ræða sem fellur vel að nánasta umhverfi.
    Með tillögunni er stigið mikilvægt skref til að tryggja framtíðarhúsnæði fyrir Tónlistarskólann á Egilsstöðum, sem auk þess að leysa með varanlegum hætti húsnæðisþörf tónlistarskólans, tekur á húsnæðisvanda frístunda- og félagsmiðstöðvarstarfs á Egilsstöðum. Með flutningi tónlistarskólans losnar um húsnæði í Egilsstaðaskóla sem hefur þörf fyrir að geta notað það húsnæði sem tónlistarskólinn ræður yfir nú.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með fræðslunefnd og hvetur nýja sveitarstjórn til að setja þessa framkvæmd inn í langtímaáætlun nýs sveitarfélags og vinna að framgangi þess.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
  • Bókun fundar Á fundi fræðslunefndar fóru skólastjórar grunnskólanna yfir stöðu mála hver í sínum skóla og með hvaða hætti skipulag starfseminnar er þessar vikurnar.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með fræðslunefnd og þakkar skólastjórum og starfsfólki skólanna fyrir hversu vel hefur tekist að leysa mál þrátt fyrir erfiðar og flóknar starfsaðstæður.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
  • Bókun fundar Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.
  • 7.4 202002030 Frístund 2020-2021
    Bókun fundar Á fundi fræðslunefndar var farið yfir stöðu mála vegna starfsemi Frístundar, einkum með áherslu á starfið á næsta skólaári, en fyrir liggur að stór árgangur kemur inn í grunnskólana annað árið í röð. Ruth Magnúsdóttir vakti sérstaka athygli á stöðu þeirra barna sem eiga rétt á sérstakri þjónustu á grundvelli málefna fatlaðra. Það er mikilvægt að huga sérstaklega að því að þessi hópur fái þjónustu við hæfi.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með fræðslunefnd og leggur áherslu á að unnin verði aðgerðaáætlun á grundvelli skýrslu starfshóps um Frístundastarfsemi, sem fjallað var um á fundi nefndarinnar 10. mars. Þannig verði tryggt að sú framtíðarsýn sem þar er sett fram fái framgang. Áhersla verði lögð á samráð við hagsmunaaðila við mótun áætlunarinnar.

    Einnig er mikilvægt að við niðurröðun tíma í íþróttahúsinu í haust verði tekið tillit til þarfa Frístundar og tryggt að starfsemin fái rými þar, nú þegar aðstaða í íþróttahúsinu stækkar mikið með tilkomu nýs fimleikasalar.

    Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.
  • Bókun fundar Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

8.Félagsmálanefnd - 182

Málsnúmer 2002023F

Á þessum fundi félagsmálanefndar voru einungis tekin fyrir trúnaðarmál sem bókuð voru sem slík og því birtast ekki undirliðir fundargerðarinnar í þessari fundargerð.

Fundargerðin lögð fram.

9.Starfshópur um legu Fjarðarheiðarganga og vegtengingar

Málsnúmer 202004198

Fyrir liggja fundargerðir starfshóps um legu Fjarðarheiðarganga, sem bæjarstjórn Fljótsdalshérað skipaði á fundi sínum þann 1. apríl.

Til máls tóku undir þessum lið og í þessari röð: Gunnar Jónsson, sem vakti athygli á vanhæfi sínu og úrskurðaði forseti hann vanhæfan. Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem bar fram fyrirspurn. Björg Björnsdóttir, Hannes Karl Hilmarsson, Anna Alexandersdóttir, Stefán Bogi Sveinsson, sem m.a. svaraði fyrirspurn, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Björn Ingimarsson, Hannes Karl Hilmarsson, Gunnhildur Ingvarsdótir, Stefán Bogi Sveinsson, Björg Björnsdóttir og Björn Ingimarsson.


Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu starfshópsins samþykkir bæjarstjórn að unnið verði áfram að undirbúningi ganganna miðað við að munni þeirra verði við Dalhús. Jafnframt felur bæjarstjórn umhverfis- og framkvæmdanefnd, í samstarfi við Vegagerðina, að hefja þegar nauðsynlegan undirbúning að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins í þessa veru. Bæjarstjórn telur rétt að stefna að því að umhverfismat fyrir nauðsynlegar vegaframkvæmdir verði unnið samhliða gerð aðalskipulags og að í því ferli verði bornir saman þrír kostir í vegalagningu, sem í vinnu starfshópsins hafa verið nefndir Fagradalsbrautarleið, suðurleið og norðurleið. Gögn úr umhverfismatinu, sem og umferðarmati sem Vegagerðin mun einnig láta fara fram, verði nýtt til að taka endanlega afstöðu til legu vegarins í aðalskipulagsferlinu.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu, en einn var fjarverandi (GJ)

10.Umsagnarferli vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar, Ferðaþjónustan Stóra Bakka

Málsnúmer 202003092

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki II að Stóra-Bakka. Umsækjandi er Ferðaþjónustan Stóra-Bakka, forsvarsmaður er Gestur Jens Hallgrímsson.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa fyrir allt að 10 gesti, en með athugasemdum um fyrirliggjandi gögn.
Einnig liggur fyrir jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

11.Umsagnarferli vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar, Hótel Hérað

Málsnúmer 202004029

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki IV að Hótel Héraði. Umsækjandi er Flugleiðahótel ehf, forsvarsmaður Auður Anna Ingólfsdóttir.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa fyrir allt að 260 gesti. Einnig jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

12.Umsagnarferli vegna umsóknar um rekstrarleyfi til sölu gistingar, Hótel Edda Egilsstöðum

Málsnúmer 202004030

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki IV að hótel Eddu Egilsstöðum. Umsækjandi er Flugleiðahótel ehf, forsvarsmaður Tryggvi Guðmundsson.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa fyrir allt að 150 gesti. Einnig jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða án atkvæðagreiðslu.

Fundi slitið - kl. 20:00.